708. spurningaþraut: Hvaða eyja heitir í rauninni Snæfell?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hann er lög­reglu­stjóri þessi. Hver er besti vinur hans?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvað heitir bíó­myndin sem fékk á dög­unum Ósk­arsverð­laun sem besta mynd síð­asta árs?

2.  Hvað þýðir þetta nafn?

3.  Hvaða jök­ull er í bak­grunni sög­unnar Kristni­hald undir jökli?

4.  Hver skrif­aði ann­ars þá bók?

5.  Sami höf­undur skrif­aði um jökul í annarri frægri bók þar sem sögu­hetjan hverfur í lokin upp á jökul og örlögin virð­ast nokkuð óráðin. Sögu­hetjan er skáld og heitir ... hvað?

6.  Þann 12. apríl 1940 lögðu Bretar undir sig ákveðið land­svæði í Evrópu sem áður hafði til­heyrt hlut­lausri þjóð í stríð­inu sem þá var nýhafið. Bretar héldu svo land­svæð­inu allt til stríðsloka. Hvaða land­svæði var þetta?

7.  Hvaða við­ur­nefni hafði far­þega­þotan Boeing 747?

8.  Við hvaða hita­stig á Celsius-kvarða frýs vatn?

9.  Snæfell er íslensk þýð­ing á nafni eyjar, sem Íslend­ingar tengja raunar síst af öllu við snjó. Eig­in­lega þvert á móti. Hvað heitir þessi eyja á máli heima­manna?

10.  Hið íslenska Snæfell er 1826 metra hátt. Og fjallið er þar með ... hvað? Hvað er merki­legt við hæð hins íslenska Snæfells?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvað heitir jurtin sem hér að neðan sést. Svarið þarf að vera nokkuð nákvæmt.

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  CODA.

2.  Child of Deaf Adults — Barn heyrn­ar­lausra full­orð­inna.

3.  Snæ­fells­jök­ull.

4.  Halldór Laxness.

5.  Ólafur Kárason.

6.  Færeyjar.

7.  Jumbo.

8.  Núll gráður.

9.  Tenerife.

10.  Hæsta fjall á Íslandi utan jökla.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Besti vinur Bjarg­fasts lög­reglu­stjóra er Mikki Mús.

Jurtin heitir fjallafura eða dverg­fura. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár