Stjórnvöld hafa hlúð að tekjuháum og millistétt á kostnað leigjenda

Fólk á leigu­mark­aði er valda­laust gagn­vart leigu­sala varð­andi leigu­verð og hve lengi það fær að búa á sama stað. Ef ástand hús­næðis er slæmt treg­ast leigj­endur oft við að kvarta af ótta við að missa hús­næðið. Þetta kemur fram í nýlegri rann­sókn þar sem rætt er við tæp­lega 30 leigj­endur. Höfundar hennar segja stjórn­völd bera vissa ábyrgð á því að hópur fólks sé fastur á leigu­mark­aði gegn vilja sínum.

Stjórnvöld hafa hlúð að tekjuháum og millistétt á kostnað leigjenda
Segja tíða flutn­inga leigj­enda skapa ýmsan vanda Kristín Lofts­dóttir og Már Wolfgang Mixa segja að fólk teng­ist heim­ilum sínum til­finn­inga­böndum og óvið­un­andi að leigj­endur þurfi að flytja gegn vilja sínum og börn þurfi að skipta um skóla vegna ástands­ins á leigu­mark­aði. Mynd: Stundin / Davíð Þór

Kristín Lofts­dóttir, pró­fessor í mann­fræði við Háskóla Íslands, og Már Wolfgang Mixa, lektor við við­skipta­deild Háskól­ans í Reykja­vík, höf­undar rann­sókn­ar­innar, segja að stjórn­völd beri vissa ábyrgð á því ástandi sem sé á leigu­mark­aði því hlúð sé að eig­endum íbúða á kostnað leigj­enda. Leigusal­inn fái því vald sitt frá stjórn­völdum. Áhersla stjórn­valda virð­ist vera mest á milli­stétt og hátekju­hópa sam­fé­lags­ins. Þau segja að íslenskur leigu­mark­aður sé lít­ill og erf­iður vegna sér­eign­ar­stefnu stjórn­valda í nær 100 ár. 

„Þú veist ekki í hvaða húsnæði þú ferð næst“

Auk Krist­ínar og Más er Anna Lísa Rún­ars­dóttir, verk­efn­is­stjóri hjá félags­vís­inda­deild HÍ, höf­undur rann­sókn­ar­innar, sem var birt í tíma­rit­inu Íslenska þjóð­fé­lagið seint á síð­asta ári. Greinin ber yfir­skrift­ina „Þú veist ekki hvaða hús­næði þú ferð í næst“: Tví­sýni­leiki og upp­lifun leigj­enda af íslenskum hús­næð­is­mark­aði.

Þre­menn­ing­arnir unnu með hug­takið precarity sem þau þýða sem tví­sýni­leika, það er að segja ástand sem er tví­sýnt, ótryggt eða hverf­ult.
Hugtakið …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Siggi Rey skrifaði
    Vellýgni Bjarni lætur ekki heyra í sér! Hann sem hefur barið sér á brjóst velferðarkerfið frábæra. Hann ber sér á brjóst hve lán til íbúðakaupa séu frábær! Hve siðblindur getur einn gaur verið!
    0
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Af hverju var Byggingarfélag verkalýðsins lagt niður um síðustu aldamót?
    Það réðu allir við að greiða íbúðarverðið sem var vel viðráðanlegt.
    0
    • Siggi Rey skrifaði
      Það hentaði ekki byggingaraðilum enda ekkert á því að græða.
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Neyð á leigumarkaði

Týndi árum á leigumarkaði
ViðtalNeyð á leigumarkaði

Týndi árum á leigu­mark­aði

Guð­mundur Hrafn Arn­gríms­son, for­maður Samtaka leigj­enda, upp­lifir sig fastan á leigu­mark­aði. Hann hefur í tvígang reynt að festa kaup á íbúð frá því að hann byrj­aði að leigja eftir skilnað en hefur ekki tek­ist það. Baráttan, höfn­unin og upp­lifun sem hann lýsir sem áfalli segir hann hafa haft mikil og langvar­andi áhrif á and­lega heilsu hans og atgervi. Hann segir árin sem farið hafa í bar­átt­una ekki koma aftur og þess vegna séu þau í raun týnd.
Missti leiguíbúðina við brunann
FréttirNeyð á leigumarkaði

Missti leigu­í­búð­ina við brun­ann

Sögu Nazari dreymir um að eign­ast íbúð en er að eigin sögn föst á óör­uggum leigu­mark­aði þar sem leigu­verð sé óbæri­lega hátt og lífs­gæði leigj­enda mun lak­ari en flestra íbúða­eig­enda, aðeins ungt fólk sem eigi efn­aða for­eldra geti keypt íbúð. Saga er nú í end­ur­hæf­ingu, meðal ann­ars vegna áfalls sem hún varð fyrir í sept­em­ber í fyrra en þá kvikn­aði í íbúð sem hún leigði.
Ráðherra segir leigumarkaðinn „óstöðugan og óáreiðanlegan“
FréttirNeyð á leigumarkaði

Ráðherra segir leigu­mark­að­inn „óstöðugan og óáreið­an­legan“

Nokkrir ráð­herrar og þing­menn segja leigu­mark­að­inn á Íslandi óör­uggan. „Mis­kunn­ar­laus“ segir einn. „Ónýtur“ segir annar. For­sæt­is­ráð­herra keypti íbúð því hún þurfti að flytja reglu­lega meðan hún var leigj­andi og mat­væla­ráð­herra segir leigu­mark­að­inn óstöðugan og óáreið­an­legan. Nokkrir keyptu íbúð til að tryggja öryggi fjöl­skyld­unnar.
Ástandið á leigumarkaði getur grafið undan geðheilsu leigjenda
FréttirNeyð á leigumarkaði

Ástandið á leigu­mark­aði getur grafið undan geð­heilsu leigj­enda

Elín Ebba Ásmunds­dóttir, sem hefur starfað að geð­heil­brigðs­málum í fjöru­tíu ár, segir að leigu­mark­að­ur­inn grafi undan geð­heilsu fólks. Kvíði leigj­enda yfir því að ná ekki endum saman og að þurfa jafn­vel að flytja gegn vilja sínum sé mjög skað­legur. Það sé umhugs­un­ar­efni að sumt fólk græði á óförum ann­arra og að yfir­völd leyfi það.
Kvartaði undan myglu og missti íbúðina
FréttirNeyð á leigumarkaði

Kvartaði undan myglu og missti íbúð­ina

Bryndís Ósk Odd­geirs­dóttir neyð­ist til að flytja með fjöl­skyldu sína úr íbúð sem hún hefur leigt frá því síð­ast­liðið haust. Hún segir leigusal­ann hafa rift samn­ingi við þau í kjöl­far þess að hún kvart­aði undan myglu í íbúð­inni. Hún telur að lítil við­brögð við fyr­ir­spurnum hennar um leigu­í­búðir helgist af því að mað­ur­inn hennar er af erlendum upp­runa.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár