,,Þetta er mjög erfið staða,“ segir Bryndís Ósk en hún og Rehan eig­in­maður hennar leita nú að leigu­í­búð fyrir fjöl­skyld­una eftir að þeim var sagt upp leig­unni í íbúð sem þau hafa búið í frá því í sept­em­ber síð­ast­liðnum. Mynd: Heiða Helgadóttir

Kvartaði undan myglu og missti íbúðina

Bryndís Ósk Oddgeirs­dóttir neyðist til að flytja með fjöl­skyldu sína úr íbúð sem hún hefur leigt frá því síðastliðið haust. Hún segir leigu­salann hafa rift samningi við þau í kjölfar þess að hún kvartaði undan myglu í íbúðinni. Hún telur að lítil viðbrögð við fyrir­spurnum hennar um leigu­íbúðir helgist af því að maðurinn hennar er af erlendum uppruna.

Bryndís Ósk Oddgeirs­dóttir flutti inn í íbúð í september síðastliðnum ásamt eigin­manni sínum, Rehan Hamouda Rehan Alslakh, og drengjunum sínum tveimur sem eru sjö og fjögurra ára.

„Yngri sonur minn, sem er fjögurra ára gamall, er búinn að vera slappur síðan við fluttum inn í þessa íbúð. Ég hélt í fyrstu að brúnu blettirnir í gluggum, sturtu og sums staðar í lofti íbúðarinnar væri drulla en þegar ég var búin að reyna að þrífa þetta burt án árangurs og strákurinn minn var alltaf að veikjast fékk ég manneskju til að myglu­prófa og þá kom í ljós að þetta var mygla,“ segir Bryndís. 

Hún segist vera sorgmædd yfir því að þurfa að flytja eina ferðina enn, sérstak­lega af því að nágrannarnir séu yndis­legir. „Hér býr gott fólk en leigu­salinn rifti samningnum eftir að ég kvartaði undan myglunni. Hann kom í byrjun ársins og skoðaði …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Margrét Sólveig Ólafsdóttir skrifaði
    Sorglegt, það borgar sig að selja ónýta myglaða íbúð í dag, allt handónýtt, eldgamalt húsnæði, fer á yfirverði. Sumt er selt óséð og fasteignasalar hvetja fólk til að gera tilboð strax til að “ná íbúðinni.” Ömurlegt ástand í alla staði. Húsnæðisskorturinn er farinn að hafa alvarlegar afleiðingar fyrir fólk.
    0
  • Siggi Rey skrifaði
    Svona leigusala/skíthæla á að nafgreina öðrum til varnaðar!
    7
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Neyð á leigumarkaði

ViðtalNeyð á leigumarkaði

Týndi árum á leigu­markaði

Guðmundur Hrafn Arngrímsson, formaður Samtaka leigjenda, upplifir sig fastan á leigu­markaði. Hann hefur í tvígang reynt að festa kaup á íbúð frá því að hann byrjaði að leigja eftir skilnað en hefur ekki tekist það. Baráttan, höfnunin og upplifun sem hann lýsir sem áfalli segir hann hafa haft mikil og lang­varandi áhrif á andlega heilsu hans og atgervi. Hann segir árin sem farið hafa í baráttuna ekki koma aftur og þess vegna séu þau í raun týnd.
FréttirNeyð á leigumarkaði

Missti leigu­íbúðina við brunann

Sögu Nazari dreymir um að eignast íbúð en er að eigin sögn föst á óöruggum leigu­markaði þar sem leiguverð sé óbærilega hátt og lífsgæði leigjenda mun lakari en flestra íbúða­eigenda, aðeins ungt fólk sem eigi efnaða foreldra geti keypt íbúð. Saga er nú í endur­hæfingu, meðal annars vegna áfalls sem hún varð fyrir í september í fyrra en þá kviknaði í íbúð sem hún leigði.

13 mín. lestur

FréttirNeyð á leigumarkaði

Ráðherra segir leigu­markaðinn „óstöðugan og óáreið­an­legan“

Nokkrir ráðherrar og þingmenn segja leigu­markaðinn á Íslandi óöruggan. „Miskunnar­laus“ segir einn. „Ónýtur“ segir annar. Forsætis­ráðherra keypti íbúð því hún þurfti að flytja reglulega meðan hún var leigjandi og matvæla­ráðherra segir leigu­markaðinn óstöðugan og óáreið­an­legan. Nokkrir keyptu íbúð til að tryggja öryggi fjöl­skyldunnar.

10 mín. lestur

FréttirNeyð á leigumarkaði

Stjórn­völd hafa hlúð að tekjuháum og milli­stétt á kostnað leigjenda

Fólk á leigu­markaði er valda­laust gagnvart leigusala varðandi leiguverð og hve lengi það fær að búa á sama stað. Ef ástand húsnæðis er slæmt tregast leigjendur oft við að kvarta af ótta við að missa húsnæðið. Þetta kemur fram í nýlegri rannsókn þar sem rætt er við tæplega 30 leigjendur. Höfundar hennar segja stjórn­völd bera vissa ábyrgð á því að hópur fólks sé fastur á leigu­markaði gegn vilja sínum.

15 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár