707. spurningaþraut: Jón Tetzschner, Dakía, tenórarnir þrír og margt fleira

707. spurningaþraut: Jón Tetzschner, Dakía, tenórarnir þrír og margt fleira

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað heitir konan á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Ólöf Kolbrún Harð­ar­dóttir var áber­andi lista­maður á Íslandi einkum á ára­tugnum 1980-1990. Hvað fékkst hún við?

2.  Íslensk hjón sett­ust að í Kanada 1877. Tveim árum seinna fædd­ist þeim sonur sem varð frægur land­könn­uður. Hvað hét hann?

3.  Um hvaða slóðir ferð­að­ist land­könn­uður þessi?

4.  Hvað heitir vin­sæl bíó­mynd sem frum­sýnd var 1980 og fjallar um fjörugt líf dansnema í New York-borg?

5.  „Ten­ór­arnir þrír“ voru vin­sælir um og laust fyrir síð­ustu alda­mót og þótti góð skemmtun að hlýða á þá syngja. Hvað hétu þeir? Nefna verður alla.

6.  Jón Tetzschner hefur und­an­far­inn ára­tug átt þátt í að hleypa af stað tveimur vef­vöfrum eða „browserum“. Nefnið að minnsta kosti annan.

7.  Dakía hét eitt af skatt­löndum Rómverja hinna fornu og var undir þeirra stjórn 106 til 275 eftir Krist. Það sam­svarar nokkurn veg­inn einu nútíma­ríki, þótt Róm­verjar hafi þó lík­lega aldrei lagt undir sig þau fjöll sem í rík­inu eru. Hvað heitir þetta nútíma­ríki?

8.  En hvaða nútíma­ríki sam­svarar nokkurn veg­inn því svæði sem Róm­verjar og fleiri köll­uðu Litlu Asíu til forna?

9.  Í síð­ari heims­styrj­öld skorti þýska her­inn mjög olíu og því var lögð mikil áhersla á að ná olíu­lindum í Sov­ét­ríkj­unum, þær sem þá voru helstar ... hvar?

10.  Áður en Þjóð­verjar réð­ust inn í Sov­ét­ríkj­unum höfðu þeir haft aðgang að tals­verðu olíu­lindum í öðru Evr­ópu­landi. Lind­irnar voru og eru við borg­ina Ploiești sem er í rík­inu ...? 

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvaða Evr­ópu­ríki notar fán­ann hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Söng.

2.  Vil­hjálmur Stef­áns­son.

3.  Norð­ur­slóðir Kanada, Banda­ríkj­anna og Græn­lands.

4.  Fame.

5.  Domingo, Carreras og Pavarotti.

6.  Vivaldi og Opera.

7.  Rúmeníu.

8.  Tyrkland.

9.  Við Bakú í Aserbædjan.

10.  Rúmeníu.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Judi Dench.

Á neðri mynd­inni er belgíski fán­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár