706. spurningaþraut: Hvað sagði hver þegar hver var sleginn?

706. spurningaþraut: Hvað sagði hver þegar hver var sleginn?

Fyrri auka­spurn­ing:

Úr hvaða sjón­varps­þáttum er skjá­skotið hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Sackler-fjöl­skyldan í Banda­ríkj­unum er stór­auðug og hefur síð­ustu árin verið í sviðs­ljós­inu vegna fram­leiðslu á þeim varn­ingi sem gerði fjöl­skyld­una ríka. Hvaða varn­ingur er það?

2.  Á dög­unum varð uppi­stand mikið á Ósk­arsverð­launa­há­tíð­inni vest­an­hafs þegar karl­maður einn laust annan karl­mann kinn­hesti. Hvað hét sá sem sló?

3.  En hvað hét hinn sem sleg­inn var?

4.  Hver var að verki þegar örlaga­ríkur kinn­hestur var sleg­inn í Njáls­sögu?

5.  Í annarri Íslend­inga­sögu kemur högg mikið einnig við sögu, þótt með öðrum hætti væri. Þá var Eyjólfur grái bóndi í Otradal sleg­inn. Með hverju?

6.  Og hvaða orð fylgdu högg­inu?

7.  Í hvaða heims­álfu er ríkið Fiji?

8.  Íslenskur rit­höf­undur var kunnur fyrir merki­leg bók­mennta­verk og þótti meðal helstu braut­ryðj­enda í módern­isma á Íslandi. En hann var þekktur fyrir fleira og bar til dæmis svart belti í júdó, af gráðu tvö. Hver var þessi rit­höf­undur?

9.  Karl nokkur sat í fang­elsum eða á geð­veikra­hælum í 32 ár vegna þess að hann þótti ógnun við almennt sið­ferði. Engar sakir voru þó form­lega bornar á hann. Meðal þeirra stofn­ana þar sem hann var hýstur um tíma var Bastillu-fang­elsið svo­kall­aða. Hver var þessi maður? 

10.  Jurt nokkur var útbreidd um mest­allt norð­ur­hvel jarðar nema helst á köld­ustu svæðum. Reyndar er hún nú ræktuð um allan heim enda orðin mikil nytja­jurt. Hún kall­ast vitis og heldur und­ir­teg­undir eru vitis labrusca (sem óx í Norður-Ameríku), vitis amurensis (sem óx í Asíu) og svo vitis vini­fera (sem óx í Evrópu, Mið­aust­ur­löndum og Mið-Asíu). Hvaða jurt er þetta?

***

Seinni auka­spurn­ing:

En úr hvaða sjón­varps­þáttum er þetta skjá­skot hér?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  OxyContin-deyfi­lyf, ópíóðar, sterk deyfi­lyf — þetta dugar allt.

2.  Will Smith.

3.  Chris Rock.

4. Gunnar á Hlíð­ar­enda.

5.  Pyngju með silf­ur­pen­ingum. Þó menn segi gull eða bara pen­ingar almennt, þá telst það nóg.

6.  „Skaltu það muna, ves­all maður, meðan þú lifir að kona hefur barið þig.“ Þetta þarf fólk ekki að hafa alveg orð­rétt. Eitthvað sem skilar merk­ing­unni þokka­lega er nóg.

7.  Eyjaálfu.

8.  Thor Vil­hjálms­son.

9.  De Sade mark­greifi.

10.  Vínber.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Efri myndin er úr Föngum.

Neðri myndin er úr Sopranos.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár