705. spurningaþraut: Hoover, Vesúvíus, Ólafur Ragnar, Riddle og Greystoke

705. spurningaþraut: Hoover, Vesúvíus, Ólafur Ragnar, Riddle og Greystoke

Fyrri auka­spurn­ing:

Hver er konan á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvað nefn­ist stærsta fót­boltaliðið í Madrid?

2.  En hvað kall­ast næst­stærsta fót­boltaliðið í Madrid?

3.  Hvaða starfi gegndi Herbert Hoover á árunum 1929-1933?

4.  Við hvaða flóa stendur eld­fjallið Vesúvíus?

5.  Hvenær varð fræg­asta eld­gosið í Vesúvíusi? Var það 179 fyrir Krist — 79 fyrir Krist — 79 eftir Krist — 179 eftir Krist eða 1790 eftir Krist?

6.  Ólafur Ragnar Grímsson fyrrum for­seti er upp­al­inn að mestu í hvaða bæ?

7.  Undir hvaða nafni er Tom Marvolo Riddle þekkt­astur?

8.  En undir hvaða nafni er John Grey­stoke þekkt­astur?

9.  Í dag hefst apríl. Enginn veit hvað mán­að­ar­heitið apríl þýðir, þótt ýmsar kenn­ingar séu til. En frá hvaða þjóð höfum við ann­ars mán­að­ar­heitið apríl?

10.  Í frægu kvæði, The Waste Land, segir í þýð­ingu Egils Helga­sonar: „Apríl er grimmastur mán­aða.“ En af hverju er apríl svo grimmur?

Og svo fæst lár­við­ar­stig fyrir að þekkja höf­und kvæð­is­ins.

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvaða hafn­ar­borg má sjá hér að neðan? Myndin er  tekin úr suðri og það verður að taka fram að myndin er ekki alveg splunkuný.

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Real Madrid.

2.  Atletico Madrid.

3.  Banda­ríkja­for­seti.

4.  Napólí-flóa.

5.  Gosið varð 79 eftir Krist.

6.  Ísafirði.

7.  Volde­mort (úr Harry Potter-sög­unum).

8.  Tarzan.

9.  Róm­verjum.

10.  Af því hann kveikir líf í vetr­ar­dauðu landi. Þetta er sem sé kald­hæðni, þannig séð.

Og höf­und­ur­inn var Eliot.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd má sjá Marie Curie vís­inda­konu og Nóbels­verð­launa­hafa.

Á neðri mynd­inni má sjá hina ógæfu­sömu Mariupol við Asovshaf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár