704. spurningaþraut: Hver beið lægri hlut fyrir Stalín?

704. spurningaþraut: Hver beið lægri hlut fyrir Stalín?

Fyrri auka­spurn­ing:

Útlínur hvaða landa­fræði­fyr­ir­brigðis má sjá hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvaða íslenski stjórn­mála­flokk­ur­inn gafst lengst út Alþýðu­blaðið?

2.  Hvernig eru Ripp, Rapp og Rupp skyldir Andrési Önd — nákvæm­lega?

3.  Hver stýrði mót­mæla­fundum á Aust­ur­velli hrun­vet­ur­inn 2008-2009?

4.  Hvaða skæði smit­sjúk­dómur gekk yfir Ísland á árunum 1707-1709 og varð allt að þriðj­ungi þjóð­ar­innar að bana?

5.  Hvaða hljóm­sveit leiðir David Grohl?

6.  Árið 2003 kom sú hljóm­sveit til Íslands að leika á tón­leikum og þegar Grohl voru að ganga um ákveðið þorp á Íslandi heyrðu þeir í bíl­skúrs­hljóm­sveit æfa og buðu hljóm­sveit­inni umsvifa­laust að hita upp fyrir sig á hinum vænt­an­legu tón­leikum. Hvað hét þessi íslenska hljóm­sveit?

7.  En í hvaða íslenska þorpi gerð­ist þessi fal­lega saga?

8.  Hvaða rúss­neski bylt­ing­ar­maður beið end­an­lega lægri hlut í valda­bar­áttu við Jósef Stalín árið 1929?

9.  Merki eitt mun upp­haf­lega hafa verið í líki eins punkts en eftir því sem best er vitað, þá var það enski fræði­mað­ur­inn Alkvin frá Jórvík sem hóf á átt­undu öld þá þróun sem leiddi til þess merkis sem við þekkjum nú. Sumir telja að mynd hans af merk­inu hafi upp­haf­lega átt að tákn ein­hvers konar eld­ingu, en það er víst mikil spurn­ing hvort eitt­hvað er hæft í því. Hvaða merki er þetta ?

10.  Allt plánet­urnar við sól­ina okkar snú­ast um „uppi­stand­andi“ möndul sinn, ef svo má segja — nema ein sem „liggur á hlið­inni“ og snýst þannig. Hvaða pláneta er það 

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvað heitir sú sem hér að neðan sést?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Alþýðu­flokk­ur­inn.

2.  Þeir eru syst­ur­synir hans. Systk­ina­börn dugar ekki!

3.  Hörður Torfason.

4.  Bólusótt, Stóra­bóla.

5.  Foo Fighters.

6.  Nilfisk.

7.  Stokks­eyri.

8.  Trotskí.

9.  ?

10.  Úranus.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á neðri mynd­inni er Jasmín prinsessa.

Á efri mynd­inni eru útlínur risa­heims­álf­unnar Pangeu eins og hún leit út fyrir svona 250 milljón árum. Hér að neðan má sjá (gróf­lega) hvernig núver­andi heims­álfur röð­uð­ust upp í hinni stóru Pangeu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár