703. spurningaþraut: Æjá, voru óeirðir á þessum degi?

703. spurningaþraut: Æjá, voru óeirðir á þessum degi?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað nefn­ist sá fal­legi græni litur sem sjá má hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Í dag er 30. mars. Í sög­unni teng­ist dag­ur­inn óeirðum sem urðu vegna inn­göngu Íslands í ... hvaða sam­tök?

2.  Hvaða ár var þetta?

3.  Hvað heitir ferjan sem leggur að landi á Seyð­is­firði?

4.  Hversu margir eru ann­ars búsettir — nokkurn veg­inn — á þétt­býl­is­staðnum Seyð­is­firði? Hér má skeika 200 til að eða frá.

5.  En Seyð­is­fjörður er nú hluti af öðru sveit­ar­fé­lagi sem heitir ... hvað?

6.  Hvað áttu Mary Poppins og Amma Mús sam­eig­in­legt?

7.  Á hvaða hljóð­færi spil­aði Jimi Hendrix?

8.  Satoshi Nakamoto er maður sem fann upp eða alt­ént þró­aði ákveðið fyr­ir­bæri sem tekið var í notkun árið 2008 og að fullu 2009. Reyndar er Satoshi Nakamoto dul­nefni og kannski eru það fleiri en einn sem leyn­ast á bak við það. Einhver sagði, eftir að hafa rann­sakað þetta til­tekna verk Satoshis Nakamoto, að hann hlyti að vera ann­að­hvort hópur fólks eða algjör snill­ingur. Þetta verk hans er reyndar afar umdeilt. Sumir telja að það sé það sem koma skal á ákveðnu sviði, en aðrir að það sé hálf­gert svindl. Hvaða verk skap­aði eða þró­aði hinn dul­ar­fulli Satoshi Nakamoto?

9.  Í hvaða heims­álfu er ríkið Tógó?

10.  „Kurwa“ er mjög algengt orð í hvaða tungu­máli?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvaða fáni er þetta?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  NATO.

2.  1949.

3.  Norræna.

4.  Íbúarnir eru rétt um 700, svo rétt telst vera 500-900.

5.  Múlaþing.

6.  Þær svifu um loftið á regn­hlífum.

7.  Gítar.

8.  Bitcoin.

9.  Afríku.

10.  Pólsku.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er smar­agðs­grænn, á ensku emer­ald green.

Á neðri mynd­inni er fáni Suð­ur­ríkj­anna í Banda­ríkj­unum, sem reyndu að slíta sig frá félögum sínum í borg­ara­stríð­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár