702. spurningaþraut: Hvað á Frakkland landamæri að mörgum löndum?

702. spurningaþraut: Hvað á Frakkland landamæri að mörgum löndum?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hver er konan hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvað nefnd­ust flutn­inga­skip vík­ing­anna til forna?

2.  Hvað heitir höf­uð­borg Úkraínu?

3.  Frakk­land er stórt land. Hvað á Frakk­land landa­mæri að mörgum löndum? Því miður er ekki unnt að gefa neitt svig­rúm hér, hár­rétta tölu verður að nefna. Hins vegar skal tekið fram að ein­göngu er átt við nágranna­ríki Frakk­lands sjálfs í Evrópu, en ekki þau þrjú ríki sem frönsk yfir­ráða­svæði ann­ars staðar í heim­inum eiga landa­mæri að. En ef ein­hver getur þau þrjú, þá fær hún eða hann franskt croissant-stig að auki!

4.  Árið 1969 kom út ný útgáfa af lag­inu In the Ghetto og varð afar vin­sælt í flutn­ingi ... hvers?

5.  Texti lags­ins fjallar um ástandið á „köldum og gráum morgni“ í hvaða borg?  

6.  Snemma á 20. öld var reynt að hefja hér á landi ræktun á dýra­teg­und sem ekki hafði sést hér áður. Það gekk nú ekki sem skyldi en dýrin voru meðal ann­ars geymd á Aust­ur­velli í miðri Reykja­vík. Hvaða dýr voru þetta?

7.  Seinna var reynt að koma dýr­unum til með því að flytja þau út í til­tekna eyju þar sem þau áttu að halda til. Hvaða eyja var það? Til­greina þarf eyj­una nákvæm­lega.

8.  Í kvik­mynd­inni K-19 The Widowmaker er fjallað um vanda­mál mikil um borð í sov­éskum kjarn­orkukaf­báti. Það kemur meðal ann­ars við sögu hug­prúður vél­stjóri sem heitir Gorelov og leggur sig allan fram við að bjarga kaf­bátnum. Hver lék hinn dug­mikla Gorelov?

9.  En hver leik­stýrði mynd­inni?

10.  Hvaða tvo staði tengja Vaðla­heið­ar­göng?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Til vinstri er stytta af valda­manni, löngu dauðum, og til hægri er end­ur­gerð af höfði hans, sam­kvæmt styttum af honum og öðrum heim­ildum, en tölu­vert er af þeim enda margt það eft­ir­minni­legt sem mað­ur­inn tók upp á. Hver er hann?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Knerrir.

2.  Kyív.

3.  Átta (Spáni, Andorra, Monacó, Ítalíu, Sviss, Þýska­landi, Lux­emburg, Belgíu). Hin ríkin þrjú eru Holland (á eyj­unni Saint-Martin í Karí­ba­hafi) og svo Surinam og Brasilía er liggja að Frönsku Guyana í Suður-Ameríku.

4.  Elvis Presley.

5.  Chicago. 

6.  Sauðnaut.

7.  Flatey á Skjálf­anda.

8.  Ingvar Sig­urðs­son.

9.  Katherine Bigelow.

10.  Eyja­fjörð og Fnjóska­dal.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri. mynd­inni er Kim Kar­dasian.

Á neðri mynd­inni er Neró Róm­ar­keis­ari.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár