700. spurningaþraut: Hér er spurt um Guðrúnu Helgadóttur og verk hennar

700. spurningaþraut: Hér er spurt um Guðrúnu Helgadóttur og verk hennar

Þessi 700. þraut er helguð Guðrúnu Helga­dóttur rit­höf­undi sem lést á dög­unum.

Fyrri auka­spurn­ing:

Furðu lítið hefur ennþá verið kvik­myndað af sögum Guðrúnar en myndin hér að ofan er þó úr bíó­mynd sem gerð var eftir einum sagna­bálki hennar um ... um hvað?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvar fædd­ist Guðrún og ólst upp?

2.  Guðrún lagði fyrir sig stjórn­mál í 20 ár. Fyrir hvaða flokk sat hún lengst af á Alþingi?

3.  Í tengslum við stjórn­mála­fer­il­inn gegndi hún fyrst kvenna ákveðnu starfi. Hvað var það?

4.  Í fyrstu bók hennar kemur fyrir per­sóna sem kölluð er „Amma Dreki“. Hvað starf hefur sú góða kona með höndum?

5.  Guðrún var sann­kall­aður braut­ryðj­andi í að sýna les­endum fram á að bera ætti jafna virð­ingu fyrir öllum, einnig þeim sem væru svo­lítið öðru­vísi en flestir. Þetta gerði hún með per­sónu í einum bóka­flokki sínum, en sú per­sóna er einmitt svo­lítið öðru­vísi en flestir og verður fyrir hryggi­legu ein­elti. Sem betur fer koma þó sögu­hetjur Guðrúnar henni til hjálpar. Hvað heitir per­sónan?

6.  Ein af mörgum vin­sælum sögu­per­sónum Guðrún var upp­haf­lega tusku­strákur í Stund­inni okkar. Hvað hét sú per­sóna?

7.  Eitt af helstu stór­virkjum Guðrúnar var sagna­bálk­ur­inn Sitji guðs englar. Þar segir ekki síst frá stúlku einni, elstu dótt­ur­inni í stórum systk­ina­hópi, sem berst við að halda öllu í skikk­an­legu standi. Hvað heitir sú per­sóna?

8.  Guðrún skrif­aði þrjú leik­rit fyrir börn og var hið fyrsta vin­sæl­ast og er reglu­lega sett upp aftur. Hvað heitir það leik­rit?

9.  Guðrún fékk nor­rænu barna­bóka­verð­launin árið 1990 fyrir magn­aða sögu sem nefn­ist ... hvað?

10.  Hér eru nokkur bók­ar­heiti. Fjögur þeirra not­aði Guðrún á bækur sínar en eitt þeirra er til­bún­ingur. Hvaða bók skrif­aði hún semsé EKKI? — Í ömmu­húsi — Litlu greyin — Sænginni yfir minni — Ekkert að þakka — Handagúnda­vél og ekk­ert minna.

Svo er hér sér­stök auka­spurn­ing sem gefur lár­við­ar­stig:

Eina skáld­sögu gaf Guðrún út árið 2000 sem var ekki sér­stak­lega ætluð börnum. Hvað nefn­ist hún?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Guðrún skrif­aði nokkrar teikni­mynda­bækur og myndin hér að neðan er úr einni þeirra. Brian Pilk­ington teikn­aði en hvað heitir sagan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Hafn­ar­firði.

2.  Alþýðu­banda­lagið.

3.  Forseti sam­ein­aðs Alþingis. Alþingi starf­aði þá í tveim deildum og því hét emb­ættið þetta en ég ætla að gefa rétt fyrir for­seta Alþingis líka.

4.  Erind­reki.

5.  Selma.

6.  Páll Vil­hjálms­son.

7.  Heiða.

8.  Óvitar.

9.  Undan ill­gres­inu.

10.  Öll bók­ar­heitin eru rétt nema Í ömmu­húsi. Guðrún gaf hins vegar út bók sem heitir í afa­húsi.

Og „full­orð­ins­bókin“ heitir Oddaflug.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Efri myndin sýnir atriði úr bíó­mynd um þá Jón Bjarna og Jón Odd.

Neðri myndin sýnir hluta af kápu­mynd Ást­ar­sögu úr fjöll­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár