701. spurningaþraut: Hér skoðum við töluna sjö! Og mörg aukastig í boði!

Þessi snýst um töluna sjö, þar sem hún átti að birtast í gær, í 700. þrautinni, en ég skipti svo um efni til að heiðra Guðrúnu Helga­dóttur rithöfund sem nú er látin.

En þá er þessi svona:

Fyrri auka­spurning:

Hér má sjá mynd af einu af hinum sjö undrum fornaldar. Hvar var þessi risa­stytta?

***

Aðal­spurningar:

1.  Hver er frægasti fótbolta­maðurinn sem borið hefur númerið 7 á treyju sinni?

2.  Dauð­syndir kaþólsku kirkjunnar eru sjö. Nefnið fimm þeirra. Ef þið náið öllum sjö, þá megiði sæma ykkur hreinsunar­elds­stigi!

3.  Sjö lönd eru í Mið-Ameríku á milli Mexíkó og Kólumbíu. Nefnið fimm þeirra! Ef þið náið öllum sjö, þá megiði sæma ykkur Karíbahafs­stigi!

4.  Árið 1963 var hljómborðs­leikarinn Ian Stewart rekinn úr hljóm­sveitinni Rolling Stones af því hann þótti of ljótur. Síðan þá hafa alls sjö menn — allt karlar — þótt nógu snoppu­fríðir til að fá að vera í þessari vinsælu hljómsveit. Hverjir eru þeir?

5.  Jóhanna Sigurðar­dóttir myndaði tvær ríkis­stjórnir árið 2009. Seinni stjórnin sat allt til loka kjör­tímabilsins 2013 en heil­miklar manna­breytingar og hrókeringar voru í stjórninni. Í þessari SEINNI ríkis­stjórn sátu alls sjö konur. Hverjar voru þær? Nefna þarf fimm þeirra, en ef þið hafið allar sjö, þá fáiði sérstakt Ingibjargar-H.-Bjarna­sonar-stig.

6.  Sjö ára brúðkaups­afmæli er kennt við mjúkt fyrir­brigði úr dýra­ríkinu. Hvað nefnist þetta sjö ára brúðkaups­afmæli?

7.  Hvað nefnast viku­dagarnir sjö — á dönsku? Hafa þarf alla sjö dagana rétt!

8.  Hver leik­stýrði kvik­myndinni Se7en árið 1995?

9.  Ein af minninga­bókum Halldórs Laxness heitir Sjö- ... Sjö-hvað? Svo gaf Halldór líka út tvo smásagna­safna­söfn sem hétu Sjö ... eitthvað (fyrir þá utan eitt safn sem bar undir­titilinn „sjö þættir“). Ef þið vitið hvað þau heita, þessi smásagna­söfn Halldórs með sjö í titlinum, þá fáiði sérsakt Gljúfra­steinsstig!

10.  Í nýja íslenska skrafl­pokanum er verðgildi bókstafsins X hæst en fyrir hann fást 10 stig. Næst­hæstir að stigum eru tveir bókstafir sem gefa hvor um sig 7 stig. Hverjir eru þeir? Athugið að þótt þið spilið kannski ekki skrafl að staðaldri, þá borgar sig að giska!

***

Seinni auka­spurning:

Hér er annað af hinum sjö undrum fornaldar. Hvar voru þessir garðar niður­komnir? — og svo segir sig sjálft að þið fáið sérstakt söundrastig ef þið þekkið öll þau fimm undur sem eftir eru!

***

Svör við aðal­spurningum:

1.  Cristiano Ronaldo.

2.  Dauða­syndirnar eru stolt, matgræðgi, reiði, öfund, losti, ágirnd og leti. 

3.  Belize, Guatemala, Hondúras, El Salvador, Nicaragua, Costa Rica og Panama.

4.  Fyrr­verandi og núverandi meðlimir — eftir dag Stewarts — eru Mick Jagger, Keith Richard, Charlie Watts, Bill Wyman, Brian Jones, Mick Taylor og Ronnie Wood.

5.  Ragna Árna­dóttir, Katrín Júlíusdóttir, Oddný Harðar­dóttir, Katrín Jakobs­dóttir, Svandís Svavars­dóttir, Álfheiður Inga­dóttir og Jóhanna sjálf.

6.  Ullar­brúðkaup.

7.  Søndag, mandag, tirsdag, onsdag, torsdag, fredag, lørdag.

8.  Fincher.

9.  Sjömeistara­sagan. Smásagna­söfnin heita Sjö töframenn og Sjöstafa­kverið.

10.  Þ og É.

***

Svör við auka­spurningum:

Risinn stóð við höfnina á Ródos í Grikk­landi.

„Hengi­garðarnir“ svokölluðu voru í Babýlon.

Og hin fimm undrin voru þessi:

Píramídarnir í Gisa í Egifta­landi — vitinn í Alexandríu — Seifs­styttan í Ólympíu í Grikk­landi — Artemisarhofið í Efesus — grafhýsi Halikarnassusar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár