699. spurningaþraut: Bahrain, Sádi-Arabía, Ástralía, Ítalía, Bandaríkin, Spánn o.s.frv.

699. spurningaþraut: Bahrain, Sádi-Arabía, Ástralía, Ítalía, Bandaríkin, Spánn o.s.frv.

Hver teikn­aði skop­mynd­ina hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hver sendi frá sér plöt­una Fis­herman's Woman árið 2005, síðan Me and Armini 2008 og þá Tookah 2013?

2.  Hvað fékkst Houdini við í líf­inu? Svarið þarf að vera þokka­lega nákvæmt.

3.  Hvaða ríki Evr­ópu­sam­bands­ins er aust­ast?

4.  Undan ströndum hvaða þétt­býl­is­staðar er Akurey? Hér koma raunar tveir til álita en spurt er um þann fjöl­menn­ari.

5.  Hvað heitir nesið sem elsti hluti Kópavogs stendur á?

6.  Í hvaða landi er höf­uð­borgin Prag?

7.  Anna Björns­dóttir lék stórt hlut­verk í kvik­mynd­inni vin­sælu Með allt á hreinu. Hvaða hlut­verk lék hún? Athugið að þið þurfið ekki að muna nafn per­són­unnar heldur ein­ungis hvaða starfi per­sóna Önnu gegndi lengst af í mynd­inni. Þeir sem muna nafnið á per­són­unni fá aftur á móti sér­stakt Með-allt-á-hreinu-stig! 

8.  Hvað hét „svarti vík­ing­ur­inn“ sem Berg­sveinn Birg­is­son skrif­aði um róm­aða bók?

9.  Hvern hefur Berg­sveinn sakað um að hafa fengið hug­myndir að láni úr bók sinni án þess að geta heim­ilda í nokkru?

10.  Bahrain, Sádi-Arabía, Ástralía, Ítalía, Banda­ríkin, Spánn, Monaco, Aserbædjan, Kanada, Bretland, Aust­ur­ríki, Frakk­land, Ung­verja­land, Belgía, Holland, Ítalía aftur, Singapúr, Japan, Banda­ríkin öðru sinni, Mexíkó, Brasilía, Abú Dabí. — Hvað mun fara fram — og í þess­ari röð — í þessum löndum á árinu 2022?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver teikn­aði skop­mynd­ina hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Emiliana Torrini.

2.  Hann var töfra­maður en sér­grein hans var að leysa sig úr hlekkjum og böndum, brjót­ast út úr skápum og þess háttar.

3.  Kýpur.

4.  Reykja­vík.

5.  Kársnes.

6.  Tékkland.

7.  Persóna Önnu er umboðs­maður Gæranna/Grýlanna. Og hún heitir Hekla.  

8.  Geir­mundur helj­ar­skinn.

9.  Ásgeir Jónsson Seðla­banka­stjóra.

10.  Þetta eru keppn­is­löndin í Formúlu 1-kappakstr­inum í ár.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Lóa Hjálmtýs­dóttir teikn­aði efri mynd­ina.

Hug­leikur Dagsson teikn­aði neðri mynd­ina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár