700. spurningaþraut: Hér er spurt um Guðrúnu Helgadóttur og verk hennar

Þessi 700. þraut er helguð Guðrúnu Helga­dóttur rithöfundi sem lést á dögunum.

Fyrri auka­spurning:

Furðu lítið hefur ennþá verið kvik­myndað af sögum Guðrúnar en myndin hér að ofan er þó úr bíómynd sem gerð var eftir einum sagna­bálki hennar um ... um hvað?

***

Aðal­spurningar:

1.  Hvar fæddist Guðrún og ólst upp?

2.  Guðrún lagði fyrir sig stjórnmál í 20 ár. Fyrir hvaða flokk sat hún lengst af á Alþingi?

3.  Í tengslum við stjórnmála­ferilinn gegndi hún fyrst kvenna ákveðnu starfi. Hvað var það?

4.  Í fyrstu bók hennar kemur fyrir persóna sem kölluð er „Amma Dreki“. Hvað starf hefur sú góða kona með höndum?

5.  Guðrún var sann­kallaður braut­ryðjandi í að sýna lesendum fram á að bera ætti jafna virðingu fyrir öllum, einnig þeim sem væru svolítið öðruvísi en flestir. Þetta gerði hún með persónu í einum bóka­flokki sínum, en sú persóna er einmitt svolítið öðruvísi en flestir og verður fyrir hryggilegu einelti. Sem betur fer koma þó sögu­hetjur Guðrúnar henni til hjálpar. Hvað heitir persónan?

6.  Ein af mörgum vinsælum sögu­persónum Guðrún var upphaf­lega tusku­strákur í Stundinni okkar. Hvað hét sú persóna?

7.  Eitt af helstu stór­virkjum Guðrúnar var sagna­bálkurinn Sitji guðs englar. Þar segir ekki síst frá stúlku einni, elstu dótturinni í stórum systkina­hópi, sem berst við að halda öllu í skikkanlegu standi. Hvað heitir sú persóna?

8.  Guðrún skrifaði þrjú leikrit fyrir börn og var hið fyrsta vinsælast og er reglulega sett upp aftur. Hvað heitir það leikrit?

9.  Guðrún fékk norrænu barna­bóka­verðlaunin árið 1990 fyrir magnaða sögu sem nefnist ... hvað?

10.  Hér eru nokkur bókar­heiti. Fjögur þeirra notaði Guðrún á bækur sínar en eitt þeirra er tilbúningur. Hvaða bók skrifaði hún semsé EKKI? — Í ömmuhúsi — Litlu greyin — Sænginni yfir minni — Ekkert að þakka — Handagúndavél og ekkert minna.

Svo er hér sérstök auka­spurning sem gefur lárviðar­stig:

Eina skáldsögu gaf Guðrún út árið 2000 sem var ekki sérstak­lega ætluð börnum. Hvað nefnist hún?

***

Seinni auka­spurning:

Guðrún skrifaði nokkrar teiknimynda­bækur og myndin hér að neðan er úr einni þeirra. Brian Pilkington teiknaði en hvað heitir sagan?

***

Svör við aðal­spurningum:

1.  Hafnar­firði.

2.  Alþýðu­bandalagið.

3.  Forseti sameinaðs Alþingis. Alþingi starfaði þá í tveim deildum og því hét embættið þetta en ég ætla að gefa rétt fyrir forseta Alþingis líka.

4.  Erindreki.

5.  Selma.

6.  Páll Vilhjálmsson.

7.  Heiða.

8.  Óvitar.

9.  Undan illgresinu.

10.  Öll bókar­heitin eru rétt nema Í ömmuhúsi. Guðrún gaf hins vegar út bók sem heitir í afahúsi.

Og „fullorðins­bókin“ heitir Oddaflug.

***

Svör við auka­spurningum:

Efri myndin sýnir atriði úr bíómynd um þá Jón Bjarna og Jón Odd.

Neðri myndin sýnir hluta af kápumynd Ástarsögu úr fjöllunum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár