701. spurningaþraut: Hér skoðum við töluna sjö! Og mörg aukastig í boði!

701. spurningaþraut: Hér skoðum við töluna sjö! Og mörg aukastig í boði!

Þessi snýst um töl­una sjö, þar sem hún átti að birt­ast í gær, í 700. þraut­inni, en ég skipti svo um efni til að heiðra Guðrúnu Helga­dóttur rit­höf­und sem nú er látin.

En þá er þessi svona:

Fyrri auka­spurn­ing:

Hér má sjá mynd af einu af hinum sjö undrum forn­aldar. Hvar var þessi risa­stytta?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hver er fræg­asti fót­bolta­mað­ur­inn sem borið hefur núm­erið 7 á treyju sinni?

2.  Dauð­syndir kaþ­ólsku kirkj­unnar eru sjö. Nefnið fimm þeirra. Ef þið náið öllum sjö, þá meg­iði sæma ykkur hreins­un­ar­elds­stigi!

3.  Sjö lönd eru í Mið-Ameríku á milli Mexíkó og Kólumbíu. Nefnið fimm þeirra! Ef þið náið öllum sjö, þá meg­iði sæma ykkur Karí­ba­hafs­stigi!

4.  Árið 1963 var hljóm­borðs­leik­ar­inn Ian Stewart rek­inn úr hljóm­sveit­inni Rolling Stones af því hann þótti of ljótur. Síðan þá hafa alls sjö menn — allt karlar — þótt nógu snoppu­fríðir til að fá að vera í þess­ari vin­sælu hljóm­sveit. Hverjir eru þeir?

5.  Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir mynd­aði tvær rík­is­stjórnir árið 2009. Seinni stjórnin sat allt til loka kjör­tíma­bils­ins 2013 en heil­miklar manna­breyt­ingar og hróker­ingar voru í stjórn­inni. Í þess­ari SEINNI rík­is­stjórn sátu alls sjö konur. Hverjar voru þær? Nefna þarf fimm þeirra, en ef þið hafið allar sjö, þá fáiði sér­stakt Ingi­bjargar-H.-Bjarna­sonar-stig.

6.  Sjö ára brúð­kaups­af­mæli er kennt við mjúkt fyr­ir­brigði úr dýra­rík­inu. Hvað nefn­ist þetta sjö ára brúð­kaups­af­mæli?

7.  Hvað nefn­ast viku­dag­arnir sjö — á dönsku? Hafa þarf alla sjö dag­ana rétt!

8.  Hver leik­stýrði kvik­mynd­inni Se7en árið 1995?

9.  Ein af minn­inga­bókum Halldórs Laxness heitir Sjö- ... Sjö-hvað? Svo gaf Halldór líka út tvo smá­sagna­safna­söfn sem hétu Sjö ... eitt­hvað (fyrir þá utan eitt safn sem bar und­ir­tit­il­inn „sjö þættir“). Ef þið vitið hvað þau heita, þessi smá­sagna­söfn Halldórs með sjö í titl­inum, þá fáiði sér­sakt Gljúfra­steins­stig!

10.  Í nýja íslenska skrafl­pok­anum er verð­gildi bók­stafs­ins X hæst en fyrir hann fást 10 stig. Næst­hæstir að stigum eru tveir bók­stafir sem gefa hvor um sig 7 stig. Hverjir eru þeir? Athugið að þótt þið spilið kannski ekki skrafl að stað­aldri, þá borgar sig að giska!

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hér er annað af hinum sjö undrum forn­aldar. Hvar voru þessir garðar nið­ur­komnir? — og svo segir sig sjálft að þið fáið sér­stakt söundra­stig ef þið þekkið öll þau fimm undur sem eftir eru!

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Cristiano Ronaldo.

2.  Dauða­synd­irnar eru stolt, mat­græðgi, reiði, öfund, losti, ágirnd og leti. 

3.  Belize, Guatemala, Hondúras, El Salvador, Nicaragua, Costa Rica og Panama.

4.  Fyrr­ver­andi og núver­andi með­limir — eftir dag Stewarts — eru Mick Jagger, Keith Richard, Charlie Watts, Bill Wyman, Brian Jones, Mick Taylor og Ronnie Wood.

5.  Ragna Árna­dóttir, Katrín Júl­í­us­dóttir, Oddný Harð­ar­dóttir, Katrín Jak­obs­dóttir, Svandís Svav­ars­dóttir, Álf­heiður Inga­dóttir og Jóhanna sjálf.

6.  Ull­ar­brúð­kaup.

7.  Søndag, mandag, tirs­dag, ons­dag, tors­dag, fredag, lørdag.

8.  Fincher.

9.  Sjömeist­ara­sagan. Smá­sagna­söfnin heita Sjö töfra­menn og Sjö­stafa­kverið.

10.  Þ og É.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Risinn stóð við höfn­ina á Ródos í Grikk­landi.

„Hengi­garð­arnir“ svoköll­uðu voru í Babýlon.

Og hin fimm undrin voru þessi:

Píramíd­arnir í Gisa í Egifta­landi — vit­inn í Alex­andríu — Seifs­styttan í Ólympíu í Grikk­landi — Artem­is­ar­hofið í Efesus — graf­hýsi Halik­arnassusar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár