695. spurningaþraut: Hver er ríkasti maðurinn í Portúgal?!

695. spurningaþraut: Hver er ríkasti maðurinn í Portúgal?!

Fyrri aukaspurning:

Hvaða persóna heldur hér á byssu?

***

Aðalspurningar:

1.  Maður nokkur var bæjarstjóri í stórum íslenskum bæ 1986-1993 en sagði þá af sér. Hann sækist nú tæpum 30 árum seinna aftur eftir sama bæjarstjórastarfi. Hvað heitir maðurinn?

2.  En hvað heitir bærinn?

3.  Karl einn hefur ríkisborgararétt bæði í Ísrael og Portúgal. Í Ísrael telst hann vera næstríkasti maður landsins en sá ríkasti í Portúgal. Þótt hann teljist lögformlega vera Ísraeli og Portúgali er hann fæddur í allt öðru landi. Þar græddist honum fé og þar var hann pólitískur fylkisstjóri um tíma. Svo fluttist hann burt og afsalaði sér ríkisborgaratign í þessu fæðingarlandi sínu, þó hann sé áfram í nánu sambandi við að minnsta kosti suma valdamenn þar. Hvað heitir karl þessi?

4.  Jensína Andrésdóttir fæddist árið 1909 og á sér tryggan sess í neðanmálsgrein í Íslandssögunni, að minnsta kosti þangað til einhver slær met sem Jensína á. Hvaða met er það?

5.  Og hvert er met Jensínu?

6.  Fjögur lönd í heimi hér eru þeirrar náttúru að þau teljast til tveggja heimsálfa. Nefnið þrjú þeirra. Ef þið getið öll fjögur, þá fáiði lárviðarstig!

7.  Hvað er umdeildasta áleggið sem notað er á pizzur?

8.  Hvað er seyðahøvd?

9.  Hvaða heimsfræga hljómsveit sendi frá sér fyrstu plötu sína 1991 og kallaði hana Leisure?

10.  Hvers vegna eru lög og regla til að ... hvað?

***

Seinni aukaspurning:

Útlínur hvaða Evrópulands má sjá hér á miðri mynd?

***

Svör við aðalspurningum:

1.  Guðmundur Árni Stefánsson.

2.  Hafnarfjörður.

3.  Roman Abramovich.

4.  Hún er sá Íslendingur, búsettur hér á landi, sem elst hefur orðið.

5.  109 ára.

6.  Rússland, Tyrkland, Kasakstan og ... Egiftaland!

7.  Ananas.

8.  Færeysk svið.

9.  Blur.

10.  Fela hitt og þetta.

***

Svör við aukaspurningum:

Leia prinsessa er á efri myndinni.

Á neðri myndinni sjá í miðið útlínur Belarús eða Hvíta-Rússlands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Haukur Harðarson skrifaði
    Indónesía á einnig land í Eyjaálfu. Þ.e. vesturhluti Nýju Gíneu. og hugsanlega einhverjar smáeyjar við Nýjú Gíneu.
    0
  • KÓS
    Kristjana Ólöf Sigurðardóttir skrifaði
    Reyndar eru Tyrkland og Spánn líka milli tveggja heimsálfa. Og ef við tökum Kasakstan þá verðum við að taka líka Azerbajan.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Fleiri tilvik og háar upphæðir í fjárdráttarmáli lögmannsins
6
Innlent

Fleiri til­vik og há­ar upp­hæð­ir í fjár­drátt­ar­máli lög­manns­ins

Lög­mað­ur­inn Guð­rún Björg Birg­is­dótt­ir starf­aði sem ráðs­mað­ur fólks sem svipt hafði ver­ið fjár­ræði og er sök­uð um að hafa nýtt sér stöðu sína til að fremja auðg­un­ar­brot. Ólaf­ur Hauks­son hér­aðssak­sókn­ari seg­ir meint­an fjár­drátt henn­ar vera til með­ferð­ar hjá embætt­inu og vel­ferð­ar­sviði Reykja­vík­ur­borg­ar var gert við­vart þar sem hún sá um fjár­mál minnst tveggja ein­stak­linga.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

„Ég kom úr mjög nánu, fallegu og stóru samfélagi kynlífsverkafólks“
6
Viðtal

„Ég kom úr mjög nánu, fal­legu og stóru sam­fé­lagi kyn­lífs­verka­fólks“

Eft­ir út­skrift úr há­skóla sótti Logn um rúm­lega hundrað störf en ekk­ert kom út úr því. Hán átti góða vini í kyn­lífs­vinnu sem hún leit­aði til. Síð­ar stofn­aði hán Rauðu regn­hlíf­ar­ina, sam­tök kyn­lífs­verka­fólks á Ís­landi. „Sam­stað­an sem kann að eiga sér stað með­al kyn­lífs­verka­fólks er eitt það fal­leg­asta og dýr­mæt­asta sem ég hef upp­lif­að í mínu lífi.“

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár