694. spurningaþraut: Og loks er komið að því að spyrja um Ödu Lovelace!

694. spurningaþraut: Og loks er komið að því að spyrja um Ödu Lovelace!

Fyrri auka­spurn­ing:

Hver er konan á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Keyri maður austur hring­veg­inn frá Reykja­vík og aki gegnum Vík í Mýrdal, að hvaða þétt­býl­is­stað er þá komið næst?

2.  Hvað hét per­sónan sem Nína Dögg Fil­ipp­us­dóttir lék í Ver­búð­inni?

3.  Elín Björk Jón­as­dóttir, Birta Líf Krist­ins­dóttir og Theódór Freyr Her­vars­son. Hvaða starfi gegna þau öll?

4.  Næst­stærsta borgin í hvaða landi heitir Maribor? (Þessi spurn­ing er fengin að láni úr úrslita­þætti Gettu betur á föstu­dag­inn var.)

5.  Hvaða fram­halds­skóli vann Gettu betur á dög­unum?

6.  Til hvaða heims­álfu telst Puerto Rico?

7.  Ada Lovelace hét bresk kona sem fædd­ist 1815 og dó aðeins tæp­lega fer­tug 1852. Þótt konur sinntu lítt vís­inda­störfum um hennar daga, þá er Lovelace talin í hópi helstu braut­ryðj­enda á ákveðnu sviði og var langt á undan sinni sam­tíð. Það liðu meira en hund­rað ár þar til starf hennar tók að bera veru­legan árangur við þróun á nýrri teg­und tækja. Hvaða tæki voru það?

8.  En Ada Lovelace er líka þekkt fyrir það hver pabbi hennar var. Hann var lista­maður og einn þeirra allra þekkt­ustu á sinni tíð, bæði á Bret­landi og víðar. Nafn hans var ekki Lovelace, heldur hét hann ... hvað?

9.  Hvaða kunni leik­maður, sem enn er í fullu fjöri, hefur spilað flesta leiki fyrir íslenska kvenna­liðið í fót­bolta?

10.  En fyrir karla­liðið?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvaða fimm karlar eru þetta? Þið þurfið ekki að þekkja nöfnin á þeim — þótt sá eða sú sem hefur öll nöfnin rétt fái lár­við­ar­stig! — en málið snertir frekar hvað þeir feng­ust allir við í líf­inu.

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Kirkju­bæj­ar­klaustri.

2.  Harpa.

3.  Þau eru veð­ur­fræð­ingar.

4.  Slóveníu.

5.  Mennta­skól­inn í Reykja­vík.

6.  Norður-Ameríku.

7.  Tölvur.

8.  Byron lávarður.

9.  Sara Björk.

10.  Birkir Bjarna­son.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Snæ­fríður. Þetta er sem sé Guðrún Snæ­fríður Gísla­dóttir leik­kona. Myndina tók Silja Magg fyrir Glamour.

Á neðri mynd­inni eru fimm fyrstu borg­ar­stjórar Reykja­víkur. Þið fáið stig fyrir það svar, en lár­við­ar­stig fyrir öll nöfnin: Páll Ein­ars­son, Knud Zimsen, Jón Þor­láks­son, Pétur Hall­dórs­son og Bjarni Bene­dikts­son.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
3
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár