693. spurningaþraut: Hvað hétu hinar þrjár dætur kalls og kellíngar?

693. spurningaþraut: Hvað hétu hinar þrjár dætur kalls og kellíngar?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hver er þessi film­stjarna?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hver er aðal­þulur Rásar eitt Rík­is­út­varps­ins eftir skipu­lags­breyt­ingar sem þar voru gerðar nýlega?

2.  Þá var aðal­þul­ur­inn und­an­farin ár hins vegar færður ein­göngu yfir í aug­lýs­inga­lestur sem hann sinnir nú af kost­gæfni. Hvað heitir hann?

3.  Hver skrif­aði barna­leik­ritið Síglaðir söngv­arar — sem reyndar hefur ekki kom­ist í hálf­kvisti við önnur leik­rit sama höf­undar að vin­sældum?

4.  Berglind Ósk Guð­munds­dóttir er tæp­lega þrí­tugur lög­fræð­ingur sem var kjörin á þing fyrir Norð­aust­ur­kjör­dæmi í síð­ustu kosn­ingum. En fyrir hvaða flokk?

5.  Hvað hét amer­íska kvik­mynda­stjarnan sem sló í gegn í kvik­mynd­inni Pretty Woman árið 1990?

6.  Í hvaða trú­ar­brögðum er sabbat mik­ils virði?

7.  Undir lok 15. aldar komu fram ný trú­ar­brögð sem nú eru þau fimmtu fjöl­menn­ustu í heim­inum. Hvað kall­ast þau? 

8.  Í íslenskum þjóð­sögum segir stundum frá kalli og kellíngu sem eiga þrjár dætur. Hvað eru þær þrjár dætur þá yfir­leitt nefndar?

9.  Hver var ann­ars dug­mesti safn­ari íslenskra þjóð­sagna?

10.  Í hvaða landi heitir höf­uð­borgin Buenos Aires?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver er káti pilt­ur­inn lengst til hægri? Hann er nú mörgum ára­tugum eldri en yfir­leitt jafn kátur þó.

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Pétur Grét­ars­son.

2.  Sigvaldi Júl­í­us­son.

3.  Torbjörn Egner.

4.  Sjálf­stæð­is­flokk­inn.

5.  Julia Roberts.

6.  Gyð­ing­dómi.

7.  Sikhismi.

8.  Ása, Signý og Helga.

9.  Jón Árnason.

10.  Argent­ínu.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Jennifer Lawrence.

Á neðri mynd­inni er Jürgen Klopp fót­bolta­þjálf­ari Liverpool lengst til hægri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
3
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár