692. spurningaþraut: Hér bregður fyrir Björgólfsfeðgum

Fyrri auka­spurning:

Hvaða land hefur þennan fána?

***

Aðal­spurningar:

1.  Frá hvaða landi koma bílar af gerðinni Lamborghini upphaf­lega?

2.  Hvaða fyrir­brigði er langoftast átt við þegar Bandaríkja­menn tala um „corn“?

3.  Hvaða tvö lönd eru með lengstu sameiginlegu landa­mærin? Hafa verður bæði rétt.

4.  Hvað nefndust konungar Egifta­lands?

5.  Í sögum er greint frá gríðar­legum deilum eins þessara konunga við mann nokkurn sem reyndi margsinnis að fá kónginn til að gera vilja sinn í ákveðnu máli. Hvað hét maðurinn?

6.  Hvað nefndast nokkrir firðir sem ganga sameiginlega í norður úr Ísafjarðar­djúpi?

7.  Hvaða hét fyrir­tækið sem þeir Björgúlfs­feðgar notuðu til fjár­festinga sinna á Íslandi, ekki síst í einum bankanna?

8.  Hvað hét bankinn sem þeir keyptu að verulegu leyti?

9.  En hvað hét þriðji maðurinn í þessu fjár­festingar­félagi, viðskipta­félagi þeirra feðga?

10.  Seint á árinu 2019 kom út lagið Blinding Lights með kanadískum tónlistar­manni og varð umsvifa­laust gríðar­lega vinsælt. Það var til dæmis mest spilaða lagið á Spotify árið 2020. Hvað kallar sig tónlistar­maðurinn?

***

Seinni auka­spurning:

Hér má sjá brot af einu auglýsinga­plakata fyrir fræga bíómynd. Hvað heitir hún?

***

Svör við aðal­spurningum:

1.  Ítalíu.

2.  Maís.

3.  Banda­ríkin og Kanada.

4.  Faraó.

5.  Móse.

6.  Jökulfirði.

7.  Samson.

8.  Lands­bankinn.

9.  Magnús Þorsteinsson.

10.  Weeknd. Klikkið á linkinn ef þið þekkið lagið ekki.

***

Svör við auka­spurningum:

Á efri myndinni er fáni Norður-Kóreu.

Á neðri myndinni er hluti af plakati sem útbúið var fyrir myndina Guðfaðirinn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár