695. spurningaþraut: Hver er ríkasti maðurinn í Portúgal?!

695. spurningaþraut: Hver er ríkasti maðurinn í Portúgal?!

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvaða per­sóna heldur hér á byssu?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Maður nokkur var bæj­ar­stjóri í stórum íslenskum bæ 1986-1993 en sagði þá af sér. Hann sæk­ist nú tæpum 30 árum seinna aftur eftir sama bæj­ar­stjóra­starfi. Hvað heitir mað­ur­inn?

2.  En hvað heitir bær­inn?

3.  Karl einn hefur rík­is­borg­ara­rétt bæði í Ísrael og Portúgal. Í Ísrael telst hann vera næst­rík­asti maður lands­ins en sá rík­asti í Portúgal. Þótt hann telj­ist lög­form­lega vera Ísraeli og Portú­gali er hann fæddur í allt öðru landi. Þar grædd­ist honum fé og þar var hann póli­tískur fylk­is­stjóri um tíma. Svo flutt­ist hann burt og afsal­aði sér rík­is­borg­ara­tign í þessu fæð­ing­ar­landi sínu, þó hann sé áfram í nánu sam­bandi við að minnsta kosti suma valda­menn þar. Hvað heitir karl þessi?

4.  Jensína Andr­és­dóttir fædd­ist árið 1909 og á sér tryggan sess í neð­an­máls­grein í Íslands­sög­unni, að minnsta kosti þangað til ein­hver slær met sem Jensína á. Hvaða met er það?

5.  Og hvert er met Jensínu?

6.  Fjögur lönd í heimi hér eru þeirrar nátt­úru að þau telj­ast til tveggja heims­álfa. Nefnið þrjú þeirra. Ef þið getið öll fjögur, þá fáiði lár­við­ar­stig!

7.  Hvað er umdeildasta áleggið sem notað er á pizzur?

8.  Hvað er seyða­høvd?

9.  Hvaða heims­fræga hljóm­sveit sendi frá sér fyrstu plötu sína 1991 og kall­aði hana Leisure?

10.  Hvers vegna eru lög og regla til að ... hvað?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Útlínur hvaða Evr­ópu­lands má sjá hér á miðri mynd?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Guð­mundur Árni Stef­áns­son.

2.  Hafn­ar­fjörður.

3.  Roman Abramovich.

4.  Hún er sá Íslend­ingur, búsettur hér á landi, sem elst hefur orðið.

5.  109 ára.

6.  Rússland, Tyrkland, Kasakstan og ... Egifta­land!

7.  Ananas.

8.  Færeysk svið.

9.  Blur.

10.  Fela hitt og þetta.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Leia prinsessa er á efri mynd­inni.

Á neðri mynd­inni sjá í miðið útlínur Belarús eða Hvíta-Rúss­lands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Haukur Harðarson skrifaði
    Indónesía á einnig land í Eyjaálfu. Þ.e. vesturhluti Nýju Gíneu. og hugsanlega einhverjar smáeyjar við Nýjú Gíneu.
    0
  • KÓS
    Kristjana Ólöf Sigurðardóttir skrifaði
    Reyndar eru Tyrkland og Spánn líka milli tveggja heimsálfa. Og ef við tökum Kasakstan þá verðum við að taka líka Azerbajan.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
2
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár