Ein milljón íbúa Úkraínu flúið landið á sjö dögum

Óttast er að um fjórar millj­ónir íbúa Úkraínu muni neyð­ast til að flýja landið á næst­unni. Á þeirri viku sem liðin er frá inn­rás Rússa hefur rúm milljón manna flúið landið. Utan­rík­is­ráð­herra Rúss­lands sagði í dag að ráða­menn á Vest­ur­löndum væru að íhuga að skipu­leggja stríð gegn Rússum og að þeir ættu að hugsa sig vel um áður en þeir geri það.

Ein milljón íbúa Úkraínu flúið landið á sjö dögum
Um ein milljón Úkra­ínu­manna hefur nú þegar neyðst til þess að flýja og að óbreyttu er talið að fjöldi flótta­fólks eigi eftir að marg­fald­ast Mynd: Chris Melzer/Flóttamannaaðstoð Sameinuðu þjóðanna (UNHCR)

„Á þeim fjöru­tíu árum sem ég hef starfað við flótta­manna­að­stoð víða um heim hef ég sjaldan séð svo mik­inn fjölda fólks neyð­ast til að flýja heim­ili sín á svo skömmum tíma,“ sagði Filippo Grandi for­stjóri Flótta­manna­að­stoðar Sam­ein­uðu þjóð­anna í yfir­lýs­ingu í morgun en síð­ast­liðna viku hefur rúm­lega ein milljón íbúa Úkraínu flúið heim­ili sín.

Flest hafa flúið til PóllandsFlótta­manna­að­stoð Sam­ein­uðu þjóð­anna birti í gær upp­lýs­ingar um hve margt fólk hefði flúið frá Úkraínu síð­ustu sjö daga.

Flótta­manna­að­stoð Sam­ein­uðu þjóð­anna birti kort sem sýnir hvert flótta­fólkið hefur farið. Flest hafa flúið til Póllands eða tæp­lega 550 þús­und manns. Næst flestir hafa farið til Ung­verja­lands eða rúm­lega 133 þús­und.
Þá segir Flótta­manna­að­stoð SÞ að auk þessa hafi tæp­lega 100 þús­und Úkra­ínu­menn flúið frá Donetsk og Luhansk í Úkraínu yfir landa­mærin til Rúss­lands dag­ana 18. til 23. febr­úar, áður en inn­rás Rússa í Úkraínu hófst aðfar­arnótt fimmtu­dags­ins 24. febr­úar. 

Föt og skór handa flótta­fólk­inuUm hálf milljón flótta­fólks hefur komið til Póllands síð­ustu sjö daga. Föt sem safnað hafði verið handa þeim biðu þeirra við landa­mærin

Talið er að nokkur þús­und íbúa Úkraínu, bæði her­menn og óbreyttir borg­arar hafi dáið í árás­unum, þeirra á meðal tólf börn, hið minnsta. 

,,Á hverri mín­útu er fólk að flýja skelfi­legt ofbeldi í Úkraínu“
Filippo Grandi,
for­stjóri Flótta­manna­að­stoðar Sam­ein­uðu þjóð­anna

Að óbreyttu telur Flótta­manna­að­stoð Sam­ein­uðu þjóð­anna að fjöldi þeirra sem neyð­ist til að leggja á flótta frá Úkraínu eigi eftir að marg­fald­ast og verði um fjórar millj­ónir áður en langt um líður.    

Við landa­mærinFlótta­fólk frá Úkraínu við landa­mæri Póllands í gær.

„Á hverri mín­útu er fólk að flýja skelfi­legt ofbeldi í Úkraínu en óvíst er hversu margt fólk hefur nú þegar flúið heim­ili sín en er enn í felum í Úkraínu Ef það tekst ekki að stöðva átökin strax munu millj­ónir manna til við­bótar neyð­ast til að flýja land,“ segir Grandi í yfir­lýs­ing­unni. 

Segir Bandaríkjamenn með Evrópu undir hælnum  

Sergei Lavrov utan­rík­is­ráð­herra Rúss­lands hélt í dag blaða­manna­fund þar sem blaða- og frétta­mönnum víða að úr heim­inum gafst kostur á að spyrja hann út í inn­rás Rússa í Úkraínu.

Hætta ekki hern­að­ar­að­gerðum þó að samn­inga­við­ræður haldi áframSergei Lavrov, utan­rík­is­ráð­herra Rúss­lands sagði Rússa til­búna að halda við­ræðum áfram. Hern­að­ar­að­gerðir í Úkraínu myndu þó halda áfram meðan á við­ræðum stæði.

Lavrov var á fund­inum tíð­rætt um hegðun stjórn­mála­fólks og blaða­manna á Vest­ur­löndum. Sagði hana byggða á til­finn­ingum en ekki stað­reyndum. ,,Nú hafa Banda­ríkja­menn Evrópu undir hælnum.  Og við sjáum mjög vel núna hvaða hlut­verki Evr­ópu­sam­bandið gegnir í raun og veru.  Hlutverk þar sem þeim er gert að koma því til skila að það sé annað hvort hrein illska eða hrein góð­mennska í heim­inum, eins og við sjáum í Hollywood. Það er afar óheppi­legt,“ sagði Lavrov á fund­inum í dag. Síðan bætti við að hann teldi að fólk myndi á end­anum róast „hyster­ían mun fjara út,“ sagði hann og að þá væri hægt að setj­ast niður og semja.

Lavrov sagð­ist hafa reynt að útskýra stöð­una eftir fremsta megni en að svo virt­ist sem til­finn­ingar frétta­fólks­ins kæmu í veg fyrir að það næmi skila­boðin. „Ég skil að þið séuð í upp­námi en frétta­mennska snýst um að greina frá stað­reyndum ekki upp­lifun,“ sagði Lavrov. 

„Það er ekki brjálað fólk sem stjórnar Rúss­landi og það erum ekki við sem erum með kjarn­orku­stríð á heil­anum“
Sergei Lavrov,
utan­rík­is­ráð­herra Rúss­lands

Hann sagði einnig að Rússar væru til­búnir að halda áfram að reyna að kom­ast að sam­komu­lagi en að aðgerðum þeirra í Úkraínu yrði haldið áfram á meðan á samn­inga­við­ræðum stæði.

Segir Vesturlönd íhuga stríð gegn Rússum

Vladimír Pútín for­seti Rúss­lands til­kynnti fyrir nokkrum dögum að hann hefði skipað rúss­neskum her­sveitum sem sjá um kjarn­orku­vopn að vera í við­bragðs­stöðu. Lavriv var á fund­inum í dag spurður hvort hann gæti full­vissað heims­byggð­ina um að ekki kæmi til kjarn­orku­vopna­árásar. 
Hann sagði að allt tal um notkun kjarn­orku­vopna væri komið frá stjórn­mála­mönnum á Vest­ur­löndum og Nató. „Það er ekki brjálað fólk sem stjórnar Rúss­landi og það erum ekki við sem erum með kjarn­orku­stríð á heil­anum,“ sagði hann og var­aði stjórn­mála­leið­toga á Vest­ur­löndum við að íhuga stríð gegn Rússum „Þeir þurfa að hugsa sig vel um áður en þeir skipu­leggja stríð gegn okkur. Og þeir eru að íhuga það,“ full­yrti Sergei Lavrov utan­rík­is­rá­herra Rúss­lands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Úkraínustríðið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár