622. spurningaþraut: Bókstafurinn V er í nöfnum 12 evrópskra höfuðborga, auk Reykjavíkur

622. spurningaþraut: Bókstafurinn V er í nöfnum 12 evrópskra höfuðborga, auk Reykjavíkur

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað kall­ast sú teg­und af heim­il­is­k­etti sem þarna sést?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvaða ríki til­heyra Kanarí­eyjar?

2.  En eyjan Madeira?

3.  Þann 8. júní árið 632 lést karl­maður einn, rúm­lega sex­tugur. Hann hafði þá um all­langa hríð barist fyrir yfir­ráðum á ákveðnu svæði og hafði síð­ustu miss­erin orðið nokkuð ágengt. Svo und­ar­lega brá hins vegar við að eftir að hann dó hófst mikil sig­ur­för arf­taka hans. Hvað hét þessi karl?

4.  Lamborg­hini — hvað er það?

5.  Hvað heitir lang, langstærsta eyjan á Eyja­firði?

6.  Þaðan gengur ferja ... hvert?

7.  Hvað heitir heit­kona Mikka Múss?

8.  Árið 1960 var Sirimavo Band­ar­anaike for­sæt­is­ráð­herra í landi sem þá kall­að­ist Ceylon. Hvað þótti merki­legt og óvenju­legt við for­sæt­is­ráð­herra­tign Band­ar­anaike?

9.  Hvað heitir Ceylon ann­ars núna?

10.  Mér reikn­ast til að auk Reykja­víkur sé bók­staf­ur­inn V í nöfnum tólf höf­uð­borga sjálf­stæðra ríkja í Evrópu — sé not­ast við venju­lega íslenskan rit­hátt. Þið þurfið að nefna SEX þess­ara borga til að fá eitt ein­asta stig! — Og segir sig sjálft að ef þið náið öllum tólf, þá fáiði lár­við­ar­stig með eik­ar­laufi.

***

Síðari auka­spurn­ing:

Hver er konan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Spáni.

2.  Portúgal.

3.  Múhameð.

4.  Lúx­us­bílar.

5.  Hrísey.

6.  Á Árskógs­sand.

7.  Minní.

8.  Hún var fyrsta konan í heimi sem varð for­sæt­is­ráð­herra.

9.  Sri Lanka.

10.  Andorra la Vella, Jerevan, Vín­ar­borg, Sarajevo, Vaduz, Vilnius, Valletta, Varsjá, Moskva, Brat­islava, Kíev, Vatíkan-borg.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Bengal­köttur.

Á neðri mynd­inni er leik­konan Elizabeth Taylor.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Emil Kristjánsson skrifaði
    Það er nú umdeilandlegt hvort Jerevan sé evrópsk borg. Skilji Kákusfjöll milli Evrópu og Asíu hlýtur Armenia að vera Asíumegin.
    Svo er annað. Ef Wien á að heita Vínarborg, sem ég persónulega er fullsáttur við, þá á Kíev náttúrulega að heita Kænugarður... með engu vaffi. En það má bjarga því fyrir horn með því að segja Belgrad vera Hvítaborg, Hvíta virki... eða e-ð þess háttar.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár