623. spurningaþraut: Allt í drasli, olía og litlir hestar

623. spurningaþraut: Allt í drasli, olía og litlir hestar

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvaða dýr má sjá á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1. Hver var söngv­ari hljóm­sveit­ar­innar Síðan skein sól?

2.  Margrét Sig­fús­dóttir hefur stýrt skóla einum í Reykja­vík í rúm 20 ár. Hún var líka einn stjórn­enda sjón­varps­þátt­ar­ins Allt í drasli um tíma fyrir 15 árum eða svo. Hvaða skóla stýrir Margrét?

3.  Í hvaða landi er borgin Hannover?

4.  Íslensku bók­mennta­verð­launin verða brátt afhent. Meðal til­nefndra skáld­verka er skáldsagan Olía. Hvað er óvenju­legt við hana?

5.  Hvað heitir eig­in­kona Guðna Th. Jóhann­es­sonar for­seta Íslands?

6.  Íslenska hesta­kynið þykir smá­vaxið. Í nágranna­landi okkar er þó til hesta­kyn enn smærra og kennt við eyjar nokkrar. Hvað heita þær?

7.  „Stóð ég úti í tungls­ljósi, stóð ég út við skóg / stórir komu skarar, af álfum var þar nóg. / Blésu þeir í sönglúðra og bar þá að mér fljótt, / og bjöll­urnar gullu á heið­skírri nótt.“ Þetta er íslensk þýð­ing á ljóði eftir þýskt skáld sem hét ... hvað?

8.  En hver þýddi?

9.  Hversu margar eru Mósebækur Bibl­í­unnar?

10.  Nefnið að minnsta kosti eina þeirra — semsé hinu grískætt­aða eða alþjóð­lega heiti. Lár­við­ar­stig fæst fyrir að þekkja rétt nöfn á þeim öllum.

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvaða fljót rennur hér undir þessa brú? (Myndinni hnupl­aði ég af mbl.is — Sigurður Bogi tók hana.

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Helgi Björns­son.

2.  Hús­stjórn­ar­skól­anum.

3.  Þýska­landi.

4.  Höfundar eru margir.

5.  Eliza Reid.

6.  Hjaltlandseyjum, Shetlandi.

7.  Heine.

8.  Jónas Hall­gríms­son.

9.  Fimm.

10.  Genesis, Exodus, Leviticus, Numeri og Deuter­onomium.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er litla ljó­saxla leð­ur­blakan frá Suður-Ameríku, en svarið leð­ur­blaka dugir alveg.

Á neðri mynd­inni er það Þjórsá sem rennur undir brúna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Emil Kristjánsson skrifaði
    9/2 og lárviðarstig að auki. En alger óþarfi að koma með ónefnið "Hjaltlandseyjar". Eyjakalsinn heitir einfaldlega Hjaltland. Og "Hetland" á máli vina og okkar og frænda.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár