621. spurningaþraut: Vika er liðin af árinu 2022, þá er 51 vika eftir

621. spurningaþraut: Vika er liðin af árinu 2022, þá er 51 vika eftir

Fyrri auka­spurn­ing:

Útlínur hvaða lands má sjá hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvaða dýr­linga­nafn tók Halldór Laxness sér þegar hann skírð­ist til kaþ­ólskrar trúar 1923?

2.  Dýr­ling­ur­inn sá dó árið 689 þegar her­toga­frú ein í Þýska­landi lét háls­höggva hann af því hann amað­ist við hjóna­bandi hennar er honum fannst ekki nógu kristi­legt. En í hvaða landi var þessi dýr­lingur upp­runn­inn?

3.  Hvað heitir fyr­ir­tækið eða leik­hóp­ur­inn sem stendur á bak við sjón­varps­þætt­ina um Ver­búð­ina?

4.  Hversu mörg nýru fæð­ist mað­ur­inn með?

5.  Hvaða íþrótta­fé­lag á Íslandi er kennt við Safamýri þótt vænn hluti af starf­sem­inni sé nú komið annað?

6.  Hvar var fyrst vakin athygli á omikron-afbrigði kór­óna­veit­unnar?

7.  A Quiet Place 1 og 2 heita tvær hryll­ings­myndir sem fjalla um skæðar morð­verur utan úr geimnum sem skortir þó eitt skiln­ing­ar­vit, sem veldur því að menn eiga svolitla mögu­leika á að kom­ast undan þeim. Hvaða skiln­ing­ar­vit er það?

8.  Hver lék aðal­kven­rull­una í þessum myndum?

9.  Hvað hétu þrælar Ingólfs Arn­ar­sonar sem sagðir voru hafa verið sendir í leit að önd­veg­is­súlum hans? Nefna þarf báða.

10.  Frá hvaða landi er fim­leika­stjarnan Nadia Comăneci?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvað heitir konan sem þarna rekur niður eftir fljóti?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Kiljan.

2.  Írlandi.

3.  Vest­ur­port.

4.  Tvö.

5.  Fram.

6.  Í Suður-Afríku.

7.  Sjónin.

8.  Emily Blunt.

9.  Vífill og Karli.

10.  Rúmeníu.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni eru Banda­ríkin.

Á neðri mynd­inni er Ófelía.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár