620. spurningaþraut: Þema þrautarinnar er Ástralía!

620. spurningaþraut: Þema þrautarinnar er Ástralía!

Þema þess­arar þrautar er Ástralía. Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað er dýrið hér að ofan kallað, en það býr hvergi nema í Ástralíu?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvers konar dýra­ætt er ein­kenn­andi fyrir Ástralíu?

2.  Ástralía var eitt sinn hluti af risa­stóru meg­in­landi á suð­ur­hveli Jarðar. Það klofn­aði upp smátt og smátt og allra síð­ast skildi Ástralía við Suð­ur­skauts­landið. Nú eru 3.000 kíló­metrar milli meg­in­lands Ástralíu og Suð­ur­skauts­lands­ins, en hve langt er síðan skildi að fullu milli þeirra? Eru það 300.000 ár, 3 millj­ónir ára, 30 millj­ónir ára, 300 millj­ónir ára eða 3 millj­arðar ára?

3.  Tvær borgir eru stærstar í Ástralíu og munar mjög litlu á mann­fjölda þeirra. Hvað heita þær?

4.  Hvað heitir stór eyja suður af strönd ástr­alska meg­in­lands­ins?

5.  Þar bjó lengi alveg ein­stakt rán­dýr sem menn útrýmdu árið 1936 þótt reglu­lega dúkki upp í fjöl­miðlum sögur um að dýrið sé enn til. Hvað nefnd­ist þetta dýr?

6.  Fræg leik­kona fædd­ist á Havaí-eyjum árið 1967 vegna þess að ástr­alskir for­eldrar hennar voru þar við nám, en hún ólst síðan upp heima í Ástralíu. Hún varð heims­fræg þegar hún lék í hasar­mynd­inni Days of Thunder með Tom Cruise árið 1990 og hefur haldið heims­frægð­inni með glæsi­brag síðan. Hvað heitir hún?

7.  Önnur áströlsk leik­kona er tveim árum yngri. Hún hefur tví­vegis fengið Ósk­arsverð­laun og hefur að auki oft verið til­nefnd til verð­laun­anna, til dæmis tvisvar fyrir að leika Elísa­betu Eng­lands­drottn­ingu í tveim mis­mun­andi myndum. Hún lék líka í róm­uðum myndum eftir sagna­bálk­inum Hringa­drott­ins­sögu. Hvað heitir þessi leik­kona?

8.  Bretar köst­uðu eign sinni á Ástralíu á 19. öld og fluttu þangað í fyrstu aðal­lega ... hvers konar fólk?

9.  Árið 1856 fóru fram kosn­ingar til fylk­is­þings í fylk­inu Victoriu í Ástralíu. Við fram­kvæmd kosn­ing­anna kom í fyrsta sinn til sög­unnar ákveðið atriði sem síðan hefur þótt til fyr­ir­myndar við kosn­ingar. Hvað var það?

10.  Til Ástralíu telst ákveðið fyr­ir­bæri sem hefur verið kallað — af hæfi­legri léttúð — „eina lif­andi veran sem sést utan úr geimnum“. Hvaða fyr­ir­bæri er það?

***

Og svo er hér sér­stök auka­spurn­ing sem gefur lár­við­ar­stig: Aðeins einn inn­fæddur ástr­alskur rit­höf­undur hefur hlotið Nóbels­verð­laun í bók­menntum. Hver er sá?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hér að neðan má sjá ástr­alskan leik­ara í fræg­asta kvik­mynda­hlut­verki sínu en myndin sem hann lék í var reyndar ekki frum­sýnd fyrr en eftir dauða leik­ar­ans vegna ofneyslu­lyfja. Hvað hét hann?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Pokadýr.

2.  30 millj­ónir ára.

3.  Sydney og Melbourne.

4.  Tasmanía.

5.  Tasman­íu­úlfur. Athugið að Tasman­íu­djöf­ull er ekki rétt svar, það er allt önnur dýra­teg­und.

6.  Nicole Kidman.

7.  Cate Blanchett.

8.  Fanga.

9.  Kosn­ing­arnar voru leyni­legar.

10.  Kór­al­rifið mikla út af aust­ur­strönd Ástralíu — The Great Barrier Reef.

Og svarið við auka­spurn­ing­unni er White. Hann fékk Nóbelinn 1973.

***

Svör við venju­legu auka­spurn­ing­unum:

Á efri mynd­inni er kóala­björn.

Á neðri mynd­inni er Heath Ledger.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár