Umboðsmaður barna vill kerfisbundið mat á áhrifum stjórnvaldsaðgerða á börn

Hægt hefði verið að milda áhrif sótt­varn­ar­að­gerða á yngsta ald­urs­hóp­inn ef kerf­is­bundið mat á áhrifum aðgerða stjórn­valda hefði verið til staðar. Salvör Nordal, umboðs­maður barna, segir kom­inn tíma til að beina sjónum að yngstu kyn­slóð­inni í bar­átt­unni gegn Covid-19.

Umboðsmaður barna vill kerfisbundið mat á áhrifum stjórnvaldsaðgerða á börn
Ekki verið lagt mat á áhrif á börnin Umboðs­maður barna segir að hægt hefði verið að milda áhrif sótt­varn­ar­að­gerða á börn hefði verið kerf­is­bundið lagt mat á áhrif stjórn­valds­að­gerða á þau. Mynd: Shutterstock

Hefði verið búið að koma á kerf­is­bundnu mati á áhrifum aðgerða stjórn­valda á börn hefði mátt milda áhrif sótt­varn­ar­að­gerða á þau. Umboðs­maður barna hefur und­an­farin ár kallað eftir því að slíkt mat verði inn­leitt en ekki hefur orðið af því. Tillfinn­an­lega skortir á að lagt hafi verið mat á áhrif kór­óna­veiru­far­ald­urs­ins á börn til þessa. Umboðs­maður barna segir að nú sé komið að því að beina sjónum að yngstu kyn­slóð­inni.

Þetta kemur fram í grein Salvarar Nordal, umboðs­manns barna, í Morg­un­blað­inu. Í grein­inni segir Salvör að kom­inn sé tímil til þess, nú þegar kór­óna­veiru­far­ald­ur­inn hafi geisað í hart­nær tvö ár, að horfast í augu við að opin­berar sótt­varn­ar­að­gerðir hafi haft marg­vís­leg áhrif á börn.

„Allt er þetta til þess fallið að valda börnum óvissu, áhyggjum og ótta“
Salvör Nordal
umboðs­maður barna

„Fáir þjóð­fé­lags­hópar hafa orðið fyrir við­líka áhrifum enda hefur skóla- og frí­stunda­starf sem og félags­líf þessa hóps verið úr skorðum nán­ast allt þetta tíma­bil. Börn hafa þurft að sæta sótt­kví, sum jafn­vel mörgum sinnum, og und­an­farið hafa börn verið að grein­ast með kór­ónu­veiruna í rík­ari mæli en áður og hafa þá verið í ein­angrun, jafn­vel ein, ef for­eldrar hafa ekki haft tök á því að sinna þeim meðan á ein­angrun stendur. Allt er þetta til þess fallið að valda börnum óvissu, áhyggjum og ótta,“ skrifar Salvör.

Börn hafi sýnt ótrúlega þrautseigju

Blása þarf börnum von í brjóstSalvör segir að nú á nýju ári sé kom­inn tími til að beina sjónum að fram­lagi barna í Covid-19 far­aldr­inum.

Salvör bendir á að líkur séu til að áhrif kór­óna­veiru­far­ald­urs­ins á börn verði langvar­andi í mörgum til­vikum, enda séu þau á mik­il­vægum mót­un­ar­aldri. Til­finn­an­lega skorti á betri tölu­legar upp­lýs­ingar um stöðu þeirra og áhrif far­ald­urs­ins. Á það beri að líta að ólíkir hópar barna standi mis­mun­andi að vígi, þannig séu heim­il­is­að­stæður mis­jafnar, mörg börn búi við erf­iðar félags­legar aðstæður og röskun á dag­legum venjum til að mynda fatl­aðra barna hafi mikil áhrif. „Þá bendir auk­inn fjöldi til­kynn­inga til barn­ar­vernd­ar­nefnda til þess að fleiri börn hafi búið við van­rækslu eða ofbeldi heima fyrir en áður.“

Embætti umboðs­manns hafi á und­an­förnum árum lagt á það höf­uð­á­herslu að inn­leitt sé mat á áhrifum á börn innan stjórn­kerf­is­ins, með því að ákvarð­anir séu rýndar út frá hvaða áhrif þær hafi á börn. Slíkt mat leggi jafn­framt skyldur á herðar stjórn­valda til að grípaa til mót­væg­is­að­gerða til að draga úr nei­kvæðum áhrifum ákvarð­ana á börn. „Skortur á slíku kerf­is­bundnu mati í íslensku stjórn­kerfi hefur verið til­finn­an­legur á síð­ustu miss­erum en hægt hefði verið að milda áhrif að minnsta kosti sumra aðgerða hefði slíkt mat þegar verið inn­leitt sem hluti af ákvarð­ana­töku stjórn­valda.“

Salvör segir að í upp­hafi far­ald­urs­ins hafi að veru­legu leyti tek­ist að slá skjald­borg um eldra fólk. Nú sé komið að því að beina sjónum að yngstu kyn­slóð­inni. „Börnin okkar hafa sýnt ótrú­lega þraut­seigju á síð­ustu miss­erum og aðlagað sig nauð­syn­legum breyt­ingum eins og kostur er. Nú þegar nýtt ár er að hefj­ast er brýnt að við sam­ein­umst um að við­ur­kenna mik­ils­vert fram­lag þeirra og blása þeim von í brjóst.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár