Þetta eru hversdagssorgir

Ragn­heiður Lár­us­dóttir skrif­aði bók­ina Gler­flísakliður sem fjallar um tvær konur; hana, sem var að skilja við eig­in­mann­inn, og móður hennar, sem glímir við Alzheimer.

Bók

Gler­flísakliður

Höfundur Ragnheiður Lárusdóttir
Bjartur
44 blaðsíður
Gefðu umsögn

Bókin Gler­flísakliður fjallar um tvær konur sem eiga í ákveðnum vanda­málum. Önnur er í sorg vegna skiln­aðar og henni batnar nú þegar líður á bók­ina. Hin er veik af Alzheimer og henni hrakar og deyr að lokum. Þannig lýsir rit­höf­und­ur­inn, Ragn­heiður Lár­us­dóttir, bók­inni. 

Nýskilin og að hugsa um veikindi móðurinnar

„Þegar ég sett­ist niður og byrj­aði að skrifa þessi ljóð var ég með hug­ann við tíma í lífi mínu þar sem ég var sjálf nýskilin og var að hugsa um mömmu mína sem var með Alzheimer. Þannig að þetta er per­sónu­leg reynsla sem kemur fram í þessum ljóðum. 

Ljóðin koma yfir­leitt bara í höf­uðið á mér og eru þar að malla í ein­hvern tíma. Það skiptir engu máli hvar ég er að skrifa, ég bara þarf að koma þessu frá mér. Ég skrifa alltaf beint í tölv­una og þetta kemur í skjalið nokkuð hreint og klárt og til­búið. En auð­vitað er ég lengi að snyrta og laga til þegar ég fæ ein­hverjar nýjar hug­myndir.“

Á hverri opnu er annað ljóðið um kon­una með Alzheimer og hinum megin er konan sem er í skiln­að­ar­sorg­inni. 

Margir þekkja þessa sorg

„Mér líður bara mjög vel með að bókin sé komin út. Þetta var ekk­ert hugsað sem þerapía fyrir mig sjálfa en það hefur gagn­ast sem slíkt. Þannig að mér finnst þetta bara gott. Og ég finn að það eru svo margir sem segja mér að þetta tali til þeirra. Fólk sem hefur lent í svip­uðum aðstæðum. Þetta eru hvers­dagssorgir, það lenda rosa­lega margir í að skilja og mjög margir eiga aðstand­anda sem er með Alzheimer. Þannig að ég held að það hafi verið þörf á þess­ari bók að ein­hverju leyti.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jólabókaflóðið 2021

14:33
ViðtalAllir fuglar fljúga í ljósið

Allir fuglar fljúga í ljósið eftir langa og djúpa hug­leiðslu

Í bók­inni Allir fuglar fljúga í ljósið riðl­ast til­vera ráfar­ans Bjartar og lífs­saga hennar brýst fram. Auður Jóns­dóttir rit­höf­undur og skap­ari sög­unnar segir að þegar hún ljúki við að skrifa bók líði henni oft eins og hún sé að ranka við sér eftir langa og djúpa hug­leiðslu. „Þetta er eins og að hafa farið mjög djúpt inn í draum nema núna er draum­ur­inn kom­inn á prent og fólk er að fara að lesa hann,“ segir Auður.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár