Ingi Tryggvason var einn með kjörgögnum í rúman hálftíma

Samkvæmt upp­færðri máls­at­vika­lýs­ingu und­ir­bún­ings­nefndar um rann­sókn kjör­bréfa var Ingi Tryggva­son, for­maður yfir­kjör­stjórnar Norð­vest­ur­kjör­dæmis einn með kjör­gögnum frá 11.59 til 12.35 eða í 36 mín­útur en ekki korter eins og áður hafði komið fram.

Ingi Tryggvason var einn með kjörgögnum í rúman hálftíma
Einn með gögnum í hálf­tíma Ingi Tryggva­son, for­maður yfir­kjör­stjórnar Norð­vest­ur­kjör­dæmis var einn með óinn­sigl­uðum kjör­gögnum í hálf­tíma áður en næsti með­limur yfir­kjör­stjórnar mætti í taln­ing­ar­sal.

Ingi Tryggva­son, for­maður yfir­kjör­stjórnar í Norð­vest­ur­kjör­dæmi, var einn með kjör­gögnum frá því að hann mætti í taln­ing­ar­sal á Hótel Borg­ar­nesi klukkan 11:59 sunnu­dag­inn 26. sept­em­ber þar til 12:35 eða í 36 mínutur en ekki í korter eins og áður hafði komið fram í svar­bréfi Lög­regl­unnar á Vest­ur­landi til und­ir­bún­ings­nefndar fyrir rann­sókn kjör­bréfa.

Þetta kemur fram í upp­færðum drögum und­ir­bún­ings­nefnd­ar­innar á máls­at­vika­lýs­ingum á því hvað gerð­ist þann 26. sept­em­ber síð­ast­lið­inn við með­ferð kjör­gagna í Norð­vest­ur­kjö­dæmi að loknum Alþing­is­kosn­ingum.  

Á sama tíma og Ingi var eini með­limur yfir­kjör­stjórnar sem var mættur í sal­inn, var starfs­fólk hót­els­ins á ferð­inni inn og út úr fremri sal aðal­sals­ins þar sem atkvæði voru talin og geymd, eða frá 11:59 til 12:28, að því er kemur fram í upp­færðri máls­at­vika­lýs­ingu.  

Fyrstu drögin ónákvæm

Í fyrstu drögum að máls­at­vikum sem nefndin birti á vef Alþingis var ekki stuðst við upp­tökur úr örygg­is­mynda­vélum Hótels Borg­ar­ness til að stað­festa nákvæm­lega klukkan hvað hver með­limur yfir­kjör­stjórnar mætti í sal­inn þar sem atkvæði vorum geymd óinn­sigluð á meðan þeir hvíld­ust.

Í þeim drögum kom hins vegar fram vitn­is­burður yfir­kjör­stjórn­ar­með­lima á því hvenær þeir mættu og hvenær mik­il­vægir atburðir á borð við það að atkvæði Við­reisnar voru skoðuð og hverjir voru á staðnum. Þeir voru hins vegar ekki sam­mála því hvenær hvað hefði gerst, eins og kemur fram í umfjöllum Stund­ar­innar um hvað gerð­ist í Norð­vest­ur­kjör­dæmi þann 26. sept­em­ber. 

Í upp­færðum drögum nefnd­ar­innar, sem birt­ust á vef Alþingis þann 17. nóv­em­ber, hefur verið stað­fest með upp­tökum úr örygg­is­mynda­vélum á hót­el­inu hvenær hver yfir­kjör­stjórn­ar­með­limur mætti í sal­inn. Ingi mætti þar fyrstur allra og var einn í 36 mín­útur þangað til næsti með­limur yfir­kjör­stjórnar mætti klukkan 12.35. Sá þriðji mætti svo klukkan 12.50, sá fjórði klukkan 13.00 og sá fimmti og síð­asti kom klukkan 13.03.

Af þessu að dæma var Ingi einn í salnum þegar Kristín Edwald hringdi í hann til að koma þeirri ábend­ingu á fram­færi að lít­ill munur væri á atkvæðum Við­reisnar í Norð­vest­ur­kjör­dæmi og Suð­ur­kjör­dæmi. Hann var þó ekki einn þegar hann hringdi í hana til baka og spurði hana hvort það væri nóg að kanna ein­ungis atkvæði Við­reisnar. 

Athugasemdir Inga við málsatvikum

Eftir að nefndin hafði gefið út fyrstu drög sín að máls­at­vikum fengu allir þeir sem nefndin fjall­aði um og tal­aði við að senda henni athuga­semdir.

Í athuga­semdum Inga Tryggva­sonar segir hann að athugun á atkvæðum Við­reisnar hafi ekki haf­ist fyrr en allir með­limir yfir­kjör­stjórnar hafi verið mættir og það væri því rangt haft eftir einum með­limi yfir­kjör­stjórnar að þegar hann mætti hafi kassi með Við­reisnar atkvæðum legið upp á borðum. „Ég full­yrði að þegar athugun á atkvæðum C-lista hófst hafi allir full­trúar í yfir­kjör­stjórn verið við­staddir og þeir allir tekið upp sitt hvorn atkvæða bunk­ann og hafið skoðun á þeim,“ segir í athuga­semdum Inga. 

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (6)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SFG
    Sveinn Flóki Guðmundsson skrifaði
    Of margt sem fyrir liggur í gögnum þessa máls bendir til þess að Ingi Tryggvason hafi átt við atkvæðin til að breyta uppröðun jöfnunarþingmanna. Í dag ákveður alþingi um um lögmæti eigin kosninga ..
    0
  • Jónsson Höskuldur skrifaði
    það er alveg augljóst að yfirkjörstjórnar maður var einn með óinsigluðum athvaEðakössum í rúmann halftíma , hagt er að gera ýnislegt á rúmum haltíma .

    Og alveg augljóst ef friður á að ríkja um kosnigarnar að kjósa þarf aftur í öllum kj´ördamum svo ekki ísland fÁi á sig kaeru fyrir ógildar kosnigar eða að svindla hafi verið .

    Taka verður af allann vafa ef friður á að ríkja .
    Og allavega að kjósa aftur í norðaustur kjördami ,allAVAGA EF FRIÐUR Á AÐ NÁST UM ÞAER kosningar
    0
  • Ásgeir Överby skrifaði
    "var einn með kjörgögnum frá því að hann mætti í talningarsal á Hótel Borgarnesi klukkan 11:59 sunnudaginn 26. september þar til 12:35"
    Það er áríðandi að hafa þetta rétt svo hægt verði að byggja skaupið á staðreyndum!
    0
  • SFG
    Sveinn Flóki Guðmundsson skrifaði
    Þessi maður er ekki hæfur til að sinna starfi héraðsdómara. Hann er ekki heldur hæfur til að sinna stjórnsýslustörfum. Hann er varla hæfur til að starfa sem lögmaður.
    0
  • Sigmundur Guðmundsson skrifaði
    Íslenska andverðleikasamfélagið ræður ekki einu sinni við að telja atkvæðin sem greidd eru í Alþingiskosningum. Þar er Flokkshollusta mikilvægari en hæfni.
    0
  • Olgeir Andresson skrifaði
    Ég vil kjósa aftur!
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Endurtalning í Norðvesturkjördæmi

Þingmenn sem brjóta lög
Þorvaldur Gylfason
PistillEndurtalning í Norðvesturkjördæmi

Þorvaldur Gylfason

Þingmenn sem brjóta lög

Saga helm­inga­skipta­flokk­anna og föru­nauta þeirra er löðr­andi í lög­brotum langt aftur í tím­ann. Ef menn kom­ast upp með slíkt fram­ferði ára­tug fram af ára­tug án þess að telja sig þurfa að ótt­ast afleið­ingar gerða sinna og brota­vilj­inn gengur í arf innan flokk­anna kyn­slóð fram af kyn­slóð, hvers vegna skyldu þeir þá ekki einnig hafa rangt við í kosn­ingum, spyr Þor­valdur Gylfason.
Meðlimur í kjörstjórn kærir vegna „gruns um kosningasvik“ í Suðvesturkjördæmi
Fréttir

Meðlimur í kjör­stjórn kærir vegna „gruns um kosn­inga­svik“ í Suð­vest­ur­kjör­dæmi

Geir Guð­munds­son, með­limur í kjör­stjórn Kópavogs, hefur lagt fram kæru til lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu vegna fram­kvæmd kosn­inga í Suð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann vill að lög­regla rann­saki kjör­gögn áður en þeim er eytt, vegna full­yrð­inga umboðs­manns Sós­í­alista­flokks­ins um mis­mun­andi stærð kjör­seðla.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár