583. spurningaþraut: Hér er lárviðarstig í boði fyrir nafnið á sovéskum marskálki!

583. spurningaþraut: Hér er lárviðarstig í boði fyrir nafnið á sovéskum marskálki!

Fyrri auka­spurn­ing snýst um mynd­ina hér að ofan.

Hver er þetta? Átt er við per­són­una, ekki leik­ar­ann?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  En hver er ann­ars leik­ar­inn?

2.  Á morgun er 1. des­em­ber. Á þeim degi árið 1918 hlaut Ísland full­veldi. Hátíða­höld í Reykja­vík voru ekki sér­lega til­þrifa­mikil. Hvers vegna?

3.  Hvað eru Sjíar og Súnnítar?

4.  Þann 1. des­em­ber árið 1896 fædd­ist austur í Rúss­landi piltur sem átti eftir að verða einn sig­ur­sæl­asti hers­höfð­ingi 20. aldar. Hann tók þátt í að verja Moskvu 1941, skipu­lagði gagn­sókn Sov­ét­ríkj­anna við Stalín­grad og var svo annar tveggja mar­skálka Sov­ét­manna sem tóku Berlín í maí 1945. Hvað hét hann? — Og svo er lár­við­ar­stig í boði fyrir að vita hvað hinn mar­skálk­ur­inn hét!

5.  Hvað heitir kast­ali bresku kon­ungs­fjöl­skyld­unnar í Skotlandi?

6.  Á hvaða útvarps­stöð var þátt­ur­inn Harma­geddon árum saman á dag­skrá?

7.  Ýmsir tón­list­ar­menn og plötu­snúðar og jafn­vel fleiri skemmti­kraftar nota orðin MC fyrir framan nafnið sitt, sam­an­ber MC Gauta. Hvað þýðir MC í þessu til­felli?

8.  Hvaða íslenska söng­kona gaf út plöt­una Butt­er­flies and Elvis í ýmsum Evr­ópu­löndum árið 2009 í kjöl­far skyndi­legra vin­sælda?

9.  Við hvaða þétt­býl­is­stað er Systrastapi?

10.  Hver leik­stýrði kvik­myndum eins og La Dolce Vita, 9 1/2 og Amarcord?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver er konan hér fyrir neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Robert Downey jr.

2.  Vegna spænsku veik­innar sem leikið hafði bæinn grátt.

3.  Tveir helstu trúflokkar múslima.

4.  Sjúkov. Hinn mar­skálk­ur­inn hét Ívan Konev.

5.  Balmoral.

6.  X-inu.

7.  Master of Ceremonies. Í rapp­inu er skamm­stöf­unin stundum sögð tákna Microphone Controller, svo líka fæst rétt fyrir það.

8.  Jóhanna Guðrún.

9.  Kirkju­bæj­ar­klaustur.

10.  Fellini.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Iron Man.

Á neðri mynd­inni er Guðrún Helga­dóttir rit­höf­undur og stjórn­mála­maður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár