582. spurningaþraut: Hver stal jólunum? Hver frestaði jólunum? Var það einhver?

582. spurningaþraut: Hver stal jólunum? Hver frestaði jólunum? Var það einhver?

Fyrri auka­spurn­ing:

Þessi brúð­hjón gengu í hjóna­band fyrr í nóv­em­ber. Nefnið annað þeirra. Þið fáið svo lár­við­ar­stig ef þið getið nefnt bæði!

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Á hverjum lengd­ist nefið þegar hann laug?

2.  Hver stal jól­unum?

3.  Hvaða þjóð­ar­leið­togi var hins vegar sagður hafa ætlað að fresta jól­unum fyrir rúmi hálfri öld — þótt nokkuð sé sú þjóð­saga málum blandin?

4.  Drottn­ing ein kom á fund Salómons kon­ungs í Bibl­í­unni til að kanna hvort hann væri eins vitur og smart og sögur hermdu. Þetta var drottn­ingin af ... ?

5.  Hver er þjóð­há­tíð­ar­dagur Banda­ríkj­anna?

6.  Aðal­steinn Kjart­ans­son, Stefán Drengs­son og einn höf­undur enn gáfu fyrir tveim árum út bók­ina Ekkert að fela. Hver var þessi þriðji höf­undur bók­ar­innar?

7.  Karl einn heitir Steven Gerrard. Á hvaða sviði hefur hann látið að sér kveða?

8.  Hvernig er smar­agður á lit­inn?

9.  En rúbíni?

10.  Hvað smíð­aði Aureli­ano Búendía ofursti sér til hug­ar­hægðar í ell­inni?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvaða leik­kona er hér að neðan í sínu síð­asta hlut­verki í bíó­mynd?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Gosa.

2.  Trölli eða Grinch.

3.  Castro Kúbu­leið­togi.

4.  Saba.

5.  4. júlí.

6.  Helgi Seljan.

7.  Fótbolta.

8.  Grænn.

9.  Rauður.

10.  Gull­fiska.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á eftir mynd­inni eru Malala Yousafzai (for­nafnið hennar dugar) og Asser Malik.

Á neðri mynd­inni má sjá Marlene Dietrich í mynd­inni Just a Gigolo. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár