581. spurningaþraut: Hér er meðal annars spurt um sokka, já, sokka!

581. spurningaþraut: Hér er meðal annars spurt um sokka, já, sokka!

Fyrri auka­spurn­ing:

Hver mál­aði mál­verkið hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Leo Baekeland var belgískur vís­inda- og upp­finn­inga­maður (síðar búsettur í Banda­ríkj­unum) sem þró­aði ákveðið fyr­ir­bæri árið 1907. Aðrir höfðu verið á svip­uðum slóðum í upp­finn­ingum sínum, en fyr­ir­bæri Baekelands sló ærlega í gegn. Hann nefndi það eftir sjálfum sér, en fann líka upp á að nota annað heiti sem varð fljótt miklu útbreidd­ara. Hvaða heiti var það?  

2.  Í hvaða borg voru umdeildir ólymp­íu­leikar haldnir árið 1936?

3.  Hver skrif­aði skáld­sög­una Stríð og frið?

4.  En skáld­sög­una Engla alheims­ins?

5.  Allt er þegar þrennt er: Hver skrif­aði skáld­sög­una Sögu þern­unnar?

6.  Hvaða fyr­ir­bæri í Árnes­sýslu er orðið að alþjóða­heiti yfir sams­konar fyr­ir­bæri?

7.  Catherine Midd­leton ber virðu­legan titil. Hver er sá?

8.  Sisimiut er næst­stærsti þétt­býl­is­stað­ur­inn í ákveðnu landi. Hvaða landi?

9.  „Það á að kjósa mig af því að ég er maður.“ Hvaða fram­bjóð­andi lét svo um mælt árið 1980?

10.  UY Scuti heitir stærsta sól­stjarnan sem vís­inda­menn hafa enn komið auga á — þá er átt við að þver­máli en ekki þyngd. Hversu miklu stærri er UY Scuti en sólin okkar? Er þessi stóra sól 1,7 sinnum stærri en okkar sól — 17 sinnum stærri — 170 sinnum stærri — eða 1.700 sinnum stærri? 

***

Seinni auka­spurn­ing:

Sokkar eins og þeir sem sjást hér að ofan voru vin­sælir á Vest­ur­löndum um 1940-1950 og hafa svo öðru­hvoru kom­ist í tísku síðan. Hvað kall­ast þeir?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Plast.

2.  Berlín.

3.  Tolstoj.

4.  Einar Már.

5.  Atwood.

6.  Geysir.

7.  Her­toga­ynjan af Cambridge.

8.  Græn­landi.

9.  Vigdís Finn­boga­dóttir.

10.  1.700 sinnum stærri.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Mál­verkið er eftir Dalí.

Sokk­arnir nefn­ast Bobby Socks.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár