584. spurningaþraut: Menningarstofnun, Eurovision, kvikmyndir, Grímsvötn, Ó guð vors lands!

584. spurningaþraut: Menningarstofnun, Eurovision, kvikmyndir, Grímsvötn, Ó guð vors lands!

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað heitir hljóm­sveitin sem gaf fyrir all­mörgum ára­tugum út plötu með því umslagi sem hér sést brot af?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Árið 2000 tók Margrét Hall­gríms­dóttir við mik­il­vægu starfi sem hún hefur gegnt síðan. Hún stýrir ákveð­inni menn­ing­ar­stofnun. Hver er sú stofnun?

2.  Hvaða rit­höf­undur fékk á dög­unum verð­laun Jónasar Hall­gríms­sonar á degi íslenskrar tungu?

3. En hver fékk við sama tæki­færi sér­staka við­ur­kenn­ingu fyrir útvarps- og hlað­varpa­gerð?

4.  Chloé Zhao er kín­verskur kvik­mynda­leik­stjóri. Hún hefur gert flestar myndir sínar í Banda­ríkj­unum og mynd hennar frá í fyrra fékk flest helstu kvik­mynda­verð­laun vest­an­hafs. Um hvað er sú kvik­mynd?

5.  Zhao sneri hins vegar ræki­lega við blað­inu í nýj­ustu mynd sinni, sem frum­sýnd var í nóv­em­ber. Hún heitir Eternals og er um ... hvað?

6.  Hvaða söng­kona stóð því­vegis fyrir Íslands hönd á sviði Eurovision á árunum 1990-1994? Og hér er ekki átt við bak­radda­söng­konur. 

7.  Hvar á Íslandi eru Grím­svötn?

8.  Ole Gunnar Sol­skjaer er sögu­frægur leik­maður Manchester United, ekki síst vegna þess að hann skor­aði sig­ur­mark liðs­ins í úrslita­leik Meist­ara­deildar Evrópu 1999 rétt fyrir leiks­lok. Hverrar þjóðar er hann?

9.  En gegn hvaða fræga evr­ópska liði skor­aði hann þetta ann­ál­aða sig­ur­mark fyrir 22 árum?

10.  Íslenski þjóð­söng­ur­inn hefst, eins og allir vita, á orð­unum: „Ó, guð vors lands.“ En hvað heitir þetta ljóð í raun og veru?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvaða fáni er þetta?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Þjóð­minja­safnið.

2.  Arnaldur Ind­riða­son.

3.  Vera Ill­uga­dóttir.

4.  Förufólk, heim­il­is­laust fólk.

5.  Ofur­hetjur.

6.  Sigríður Bein­teins­dóttir.

7.  Í Vatna­jökli.

8.  Norskur.

9.  Bayern München.

10.  Lof­söngur.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Bítl­arnir gáfu út þá hljóm­plötu sem hér um ræðir.

Hér er umslagið allt.

Fáninn er fáni Ísraels.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár