KSÍ gerði kröfu um sátt í máli Kolbeins svo hann yrði valinn í HM-hópinn

Almar Þór Möller, lög­maður Kolbeins Sig­þórs­sonar, stað­festir í sam­tali við Stundina að það að klára kæru brota­þola með sátt var skil­yrði fyrir því að Kolbeinn kæmi til álita að spila á heims­meist­ara­mót­inu í Rúss­landi 2018. Þetta skil­yrði kom frá KSÍ.

KSÍ gerði kröfu um sátt í máli Kolbeins  svo hann yrði valinn í HM-hópinn
Sátt til að spila á HM Til þess að kom­ast til álita til að spila á heims­meist­ara­móti karla í knatt­spyrnu í Rúss­landi 2018 þurfti Kolbeinn Sig­þórs­son að ljúka sáttum við brot­ar­þola. Mynd: afp

Tvær konur kærðu Kolbein Sig­þórs­son, þá lands­liðs­mann í fót­bolta, fyrir kyn­ferð­is­lega áreitni og lík­ams­árás sem átti að hafa átt sér stað á skemmti­stað í byrjun sept­em­ber 2017. Konurnar hafa nú báðar stigið fram, önnur þeirra, Þór­hildur Gyða Arn­ars­dóttir, eftir að Guðni Bergsson, fyrr­ver­andi for­maður KSÍ hafði sagt í við­tali við Kastljós að sam­band­inu hafði ekki borist ábend­ingar um kyn­ferð­is­legt ofbeldi þrátt fyrir að faðir kon­unnar hafði sagt honum frá kærunni 2018.

Á meðan málið var til rann­sóknar hjá lög­reglu hafði lög­maður Kolbeins sam­band við brota­þola í þeirri til­raun að ná fram sátt í mál­inu. Lög­mann­inum, Almari Þór Möller tókst það hins vegar ekki svo annar aðili, Vil­hjálmur Vil­hjálms­son hæsta­rétt­ar­lög­maður, var feng­inn inn í málið til að ná sáttum sem að lokum tókst. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

KSÍ-málið

FréttirKSÍ-málið

Formaður stjórnar í sam­skiptum við lög­mann­inn

Kæra var lögð fram á hend­ur leik­manni FH, Eggerti Gunn­þóri Jóns­syni, ásamt lands­liðs­fyr­ir­lið­an­um. Aron Einar Gunn­ars­son komst ekki í lands­liðs­hóp­inn vegna máls­ins. Formað­ur að­al­stjórn­ar FH, Við­ar Hall­dórs­son, seg­ist hafa haft vitn­eskju um ásak­an­irn­ar í sum­ar en ekki sé ástæða til að bregð­ast við á meðan leik­menn­irnir hafi ekki verið kall­aðir í skýrslu­töku og fé­lag­inu ekki borist til­kynn­ing frá lög­regl­unni.
FréttirKSÍ-málið

Lögmaður tengdur KSÍ og Kolbeini birti gögn um brota­þola

Gunnar Ingi Jóhanns­son, lög­maður Þór­hildar Gyðu Arn­ars­dóttur, segir að birt­ing rann­sókn­ar­gagna geti varðað við brot á hegn­ing­ar­lögum og íhugar að kæra Sigurður G Guð­jóns­son til lög­reglu vegna þess. Rík ástæða sé til að hafa áhyggjur af því að rann­sókn­ar­gögn í saka­málum séu notuð í ann­ar­legum til­gangi á opin­berum vett­vangi og ástæðu til að hafa áhyggjur af því að lög­maður sem hefur ekki aðkomu að mál­inu sé feng­inn til að fronta birt­ingu slíkra gagna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár