„Mér finnst þetta vera alveg ótrúleg upptalning“

Bjarni Bene­dikts­son hneyksl­aður á spurn­ingu um hneyksl­is­mál og hvort hann hafi glatað trausti kjós­enda.

„Mér finnst þetta vera alveg ótrúleg upptalning“
Bjarni Bene­dikts­son Svaraði fyrir lágar mæl­ingar á fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins fyrir kosn­ingar og tengslum þess við hneyksl­is­mál. Mynd: RÚV

Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, var ósáttur við spurn­ingu um hvort hann hefði glatað trausti kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks­ins í síð­ustu leið­togaum­ræð­unum fyrir alþing­is­kosn­ing­arnar á RÚV í kvöld.

„Mér finnst þetta í raun og veru vera alveg ótrú­leg upp­taln­ing hjá þér, ef ég á að segja alveg eins og er,“ svar­aði Bjarni.

Sigríður Hagalín Björns­dóttir, frétta­kona RÚV, spurði Bjarna: „En Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, hann var 40 pró­senta flokkur fyrir nokkrum árum síðan, nú berj­ist þið við að halda ykkur yfir 20 pró­sentum. Und­an­farin ár hefur hvert hneyksl­is­málið á fætur öðru riðið yfir flokk­inn, og sum þessi hneyksl­is­mál hafa verið tengd þinni per­sónu. Ég er að nefna til dæmis bæði Vafn­ings­málið og Panama­skjölin, og nú síð­ast Ásmund­ar­sal­ar­málið. Hefurðu glatað trausti kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks­ins og hef­urðu ein­hvern tím­ann íhugað að hætta for­mennsku?“

Að sögn Bjarna hefur Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn ekki notið slíks fylgis í hans tíð. 

„Í fyrsta lagi að tala um að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hafi verið í 40 pró­sentum. Eigum við aðeins að koma í nútím­ann. Eigum við aðeins að spyrja okkur, hvað hefur gerst síð­ast­liðin tíu ár? Hversu langt aftur eigum við að fara aftur til þess að spyrja okkur, hvað er eðli­legt fylgi fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn? Ég er búinn að vera í 18 ár. Hann hefur aldrei fengið 40 pró­sent í 18 ár, á meðan ég hef verið. Og á meðan ég hef verið, í tólf ár, þá höfum við verið á þessu bili. 23,6 upp í 29. Og við erum þar í þess­ari könnun, þannig að það er engin drama­tík, það er ekk­ert stór­kost­legt að ger­ast. Og þessi mál sem þú nefnir. Ég hef mætt hingað nógu oft og svarað fyrir þau og ég hef gengið undir dóm kjós­enda mjög oft. Við erum stærsti flokk­ur­inn. Við eigum fyrsta þing­mann í hverju ein­asta kjör­dæmi í dag. Og við erum bjart­sýn fyrir morg­un­dag­inn. Þannig að ég hélt ekki að ég væri að fara að koma hingað til þess að ræða mál sem við töl­uðum um fyrir kosn­ing­arnar 2013. Við erum að tala hér um fram­tíð­ina. Uppgjör á þessu kjör­tíma­bili og horfa til fram­tíðar, og við erum spennt fyrir fram­tíð­inni. Og það eru kjós­endur líka.“ 

Í nýj­ustu könnun Gallup, sem kynnt var í kvöld, hlýtur Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn 23,4% stuðn­ing.

Samkvæmt könnun Félags­vís­inda­stofn­unar vilja 12,5% að Bjarni verði næsti for­sæt­is­ráð­herra, þótt Sjáf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist með 22% stuðn­ing í sömu könnun. 42% að Katrín Jak­obs­dóttir haldi stöð­unni. Fleiri kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks­ins vilja að Katrín verði for­sæt­is­ráð­herra en Bjarni, sam­kvæmt könn­un­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2021

FréttirAlþingiskosningar 2021

Inga Sæland vill ekki bregð­ast við ásök­unum á hendur fram­bjóð­anda Flokks fólks­ins

Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins, seg­ist ekki vilja bregð­ast við tölvu­pósti þar sem fram­bjóð­andi flokks­ins er sak­aður um að hafa brotið ítrekað á konum í gegnum tíð­ina. Hún seg­ist ekki vita um hvað málið snýst og ætli því ekki að aðhaf­ast. Hún seg­ist þó hafa fengið ábend­ingu um sama mál nokkrum dögum fyrir kosn­ingar. Mis­mun­andi er eftir flokkum hvaða leiðir eru í boði til þess að koma á fram­færi ábend­ingu eða kvörtun um með­limi flokks­ins. Flokkur fólks­ins er til að mynda ekki með slíkar boð­leiðir.

14 mín. lestur

Fréttir

Meðlimur í kjör­stjórn kærir vegna „gruns um kosn­inga­svik“ í Suð­vest­ur­kjör­dæmi

Geir Guð­munds­son, með­limur í kjör­stjórn Kópavogs, hefur lagt fram kæru til lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu vegna fram­kvæmd kosn­inga í Suð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann vill að lög­regla rann­saki kjör­gögn áður en þeim er eytt, vegna full­yrð­inga umboðs­manns Sós­í­alista­flokks­ins um mis­mun­andi stærð kjör­seðla.
Fréttir

Þrír starfs­menn Hótels Borg­ar­ness tóku myndir í tómum taln­inga­sal

Starfs­menn Hótel Borg­ar­nes höfðu óheftan aðgang að óinn­sigl­uðum atkvæðum í auðum sal hót­els­ins meðan yfir­kjör­stjórn var ekki á staðnum eftir að fyrstu taln­ingu lauk. Lög­reglan getur ekki stað­fest hvort að starfs­menn­irnir hafi farið að svæð­inu sem kjör­gögnin voru geymd vegna þess að starfs­menn­irnir hverfa úr sjón­ar­sviði eft­ir­lits­mynda­véla. Þrír starfs­menn tóku myndir af salnum og þá atkvæðum.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár