512. spurningaþraut: Hér er meðal annars spurt um Fóbos og Deimos, athugið það!

512. spurningaþraut: Hér er meðal annars spurt um Fóbos og Deimos, athugið það!

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað heitir ljós­mynda­fyr­ir­sætan á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvað hét róm­verski stríðs­guð­inn?

2.  Sá átti sér sam­svörun í gríska goða­heim­inum. Hjá Grikkjum til forna hét stríðs­guð­inn ... hvað?

3.  Í fylgd með gríska stríðs­guð­inum voru jafnan synir hans tveir heldur ískyggi­legir, sem hétu Fóbos og Deimos. Hvað þýddu nöfn þeirra?

4.  Þeir Fóbos og Deimos eru nú á dögum tengd­ari róm­verska stríðs­guð­inum en hinum gríska. Hvers vegna?

5.  Hver er upp­á­halds­kokk­teill James Bond?

6.  Helga Thorberg leik­kona og athafna­kona — til dæmis blóma­búð­ar­eig­andi um skeið — er í efsta sæti fram­boðs­lista í Norð­vest­ur­kjör­dæmi fyrir kosn­ing­arnar nú. Fyrir hvað flokk?

7.   Þegar smjör er unnið úr rjóma verður eftir vökvi sem fyrrum var not­aður í ýmis­legt, en lítið mun fara fyrir því nú. Hvað nefn­ist vök­vinn?

8.  Hvaða heims­frægi tón­list­ar­maður — raunar einn sá fræg­asti í heimi um þessar mundir — gaf fyrir skemmstu út plötu sem vakið hefur mikla athygli og heitir Donda?

9.  Hvað þýðir nafnið Donda í þessu til­felli?

10.  Hvaða fræga 19. aldar skáld­saga fjallar um hug­ar­víl stúd­ents­ins Raskolnikovs eftir að hann hefur framið morð?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Úr hvaða kvik­mynd er skjá­skotið hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Mars.

2.  Ares.

3.  Ógn og Skelfing. Eða eitt­hvað álíka: Ótti, Ofsa­hræðsla, etc. 

4.  Þeir eru nú tungl reiki­stjörn­unnar Mars.

5.  Vodka Martini.

6.  Sós­í­alista­flokk­inn.

7.  Áfir.

8.  Kanye West.

9.  Móðir Wests hét Donda.

10.  Glæpur og refs­ing.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Iman frá Sómalíu. Hún var ein helsta ofur­fyr­ir­sæta heims á síð­asta ára­tug síð­ustu aldar. Hún gekk síðan að eiga tón­list­ar­mann­inn David Bowie.

Skjá­skotið er hins vegar úr kvik­mynd­inni All the Pres­ident's Men um rann­sókn banda­rískra blaða­manna á Richard Nixon þáver­andi for­seta.

***

Og svo eru hlekkir hér að neðan, gleymið því aldrei!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár