513. spurningaþraut: „Þetta er ég úti í horni, þetta er ég í kastljósinu“

Fyrri auka­spurn­ing:

Á mynd­inni hér að ofan, sem var tekin 1840, má sjá Dorothy Catherine Draper sem bjó í New York. Hver er ástæðan fyrir því að hún á sér sinn sess á spjöldum sög­unnar?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Arthúr Björgvin Bollason hefur lengi verið sér­legur frétta­rit­ari Rík­is­út­varps­ins ... í hvaða borg?

2.  Hvaða starfi hafa þessir karlar (ásamt öðrum) gegnt und­an­far­inn ald­ar­fjórð­ung: Thor­bjørn Jagland, Kjell Magne Bondevik og Jens Stol­ten­berg?

3.  Hvar var Ísland lýst lýð­veldi þann 17. júní 1944?

4.  Til hvaða lands telst Messina-sund?

5.  Rómeó og Júlía heitir leik­rit sem nýlega var frum­sýnt í Þjóð­leik­hús­inu. Í hvaða landi ger­ist leik­ritið?

6.  Hver er leik­stjóri sýn­ing­ar­innar nú?

7.  GPS er alþjóð­leg stað­setn­ing­ar­tækni. Fyrir hvað stendur hin enska skamm­stöfun?

8.  Hvaða banda­ríska hljóm­sveit sendi frá sér lagið Losing My Religion árið 1991?

9.  Hvað hét 17 ára brasil­ískur piltur sem varð heims­meist­ari í fót­bolta ásamt félögum sínum árið 1958?

10.  Hvaða félag heldur úti skip­inu Vilhelm Þor­steins­syni EA 11?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hér að neðan má sjá þjóð­fána níunda stærsta ríkis í heimi. Hvað heitir það?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Berlín.

2.  For­sæt­is­ráð­herrar í Noregi.

3.  Á Þing­völlum.

4.  Ítalíu.

5.  Ítalíu.

6.  Þor­leifur Örn.

7.  Global Positioning System.

8.  R.E.M.

9.  Pelé.

10.  Samherji.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Myndin af Dorothy Catherine Draper er elsta por­trett-myndin sem varð­veist hefur af mann­eskju. Orðið „hún“ í spurn­ing­unni á við mynd­ina, ekki mann­eskj­una. Hér að neðan má sjá mynd­ina (sem er „dag­gerótýpa“) alla, til fróð­leiks og skemmt­unar.

Á neðri mynd­inni er fáni Kasakstans.

***

Gáið svo á eldri þrautir. Hlekkir á þær eru hér að neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár