511. spurningaþraut: Hvaða íslenski fugl er kenndur við hvítt stél?

511. spurningaþraut: Hvaða íslenski fugl er kenndur við hvítt stél?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hver er karl­inn á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Í hvaða landi er höf­uð­borgin Santiago?

2.  En í hvaða landi er höf­uð­borgin San Salvador?

3.  Árið 1794 gekk karl nokkur á Öræfa­jökul, fyrstur manna svo vitað sé ásamt fylgd­ar­mönnum sínum. Hann gekk raunar ekki á hæsta tind­inn. En hver var hann?

4.  Hvað heitir ann­ars hæsti tindur jök­uls­ins?

5.  Hver skrif­aði skáld­sög­una Vopnin kvödd, eða Farewell To Arms?

6.  En hver þýddi hana á íslensku?

7.  Hvað heitir útvarps­þáttur Veru Ill­uga­dóttur sem er á Rás eitt á föstu­dags­morgnum?

8.  Hvað nefnd­ist leik­húsið sem Þór­hildur Þor­leifs­dóttir, Arnar Jónsson og fleiri ráku um 1980?

9.  Fugl einn á Íslandi ber lat­neska fræði­heitið Haliaeetus albicilla. Albicilla þýðir „hvítt stél“. Hvaða fugl er hér um að ræða?

10.  Sif hét ásynja nokkur í nor­rænni goða­fræði, ann­áluð fyrir feg­urð. Hún ann­að­ist einkum um til­tekna jurt eða jurta­flokk, öllu heldur. Hvaða jurt var það?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hér að neðan má sjá mynd­skreyt­ingu úr skáld­sögu einni frá 20. öld sem einnig hafa verið gerðar eftir kvik­myndir, sjón­varps­þættir og teikni­mynda­sögur. Hvað heitir skáldsagan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Tjíle.

2.  El Salvador.

3.  Sveinn Pálsson.

4.  Hvanna­dals­hnjúkur.

5.  Hemingway.

6.  Halldór Laxness.

7.  Í ljósi sög­unnar.

8.  Alþýðu­leik­húsið.

9.  Haförn.

10.  Korn.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni má sjá Hilmi Snæ leik­ara.

Hér er myndin öll.

Mynd­skreyt­ingin á neðri mynd­inni á við vís­inda­skáld­sög­una Dune.

Þarna má sjá einn af þeim risa­stóru sand­ormum sem við sögu koma í skáld­sög­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár