510. spurningar: Hér er spurt galdra í allskonar skilningi

510. spurningar: Hér er spurt galdra í allskonar skilningi

Hér snú­ast allar spurn­ingar um galdra og töfra í víðum skiln­ingi. Og fyrri auka­spurn­ing er svona:

Hér að ofan má sjá fræga galdra­norn. Hvað heitir hún?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvaða galdra­maður er með ör á enni sem lík­ist helst eld­ingu?

2.  Ein besta mynd um galdra sem gerð hefur verið á seinni árum fjall­aði um keppni tveggja töfra­m­anna sem Christian Bale og Hugh Jackman léku. Scarlett Johansen lék aðal­kven­rull­una og David Bowie brá fyrir í hlut­verki Nicola Tesla. Það var sá frægi leikstóri Christopher Nolan sem leik­stýrði en hvað hét þessi magn­aða mynd?

3.  Galdra­bækur voru gjarnan gefnar út á fyrri tíð en einnig á vorum dögum. Elísabet Kristín Jök­uls­dóttir gaf til dæmis út eina árið 1993. Hvað hét hún?

4.  Louis Comte var franskur töfra­maður á fyrri hluta 19. aldar sem átti mik­inn þátt í að gera galdra­brögð og brellur að til­tölu­lega virðu­legri skemmtun, enda kom hann jafnan fram spari­klæddur með pípu­hatt og allt. Comte er tal­inn hafa verið fyrstur til að fram­kvæma töfra­bragð sem allar götur síðan hefur verið eins konar ein­kenn­is­brella töfra­m­anna. Hvað var það?

5.  Einn af fræg­ustu töfra­mönnum heims er Banda­ríkja­maður sem bar upp­haf­lega ætt­ar­nafnið Kotkin en tók sér síðar nafn frægrar sögu­per­sónu úr 19. aldar skáld­sögu eftir Charles Dickens. Hvað kall­ast þessi töfra­maður sem sé síðan?

6.  Albus Percival Wulfric Brian. Þessi fjögur skírn­ar­nöfn ber víð­frægur galdra­maður, húð­vænn og vel­vilj­aður öllu góðu fólki. En hvaða ætt­ar­nafn ber þessi ágæti karl?

7.  Hvað hét skóla­piltur einn í Hóla­skóla fyrr á tíð sem kenndur var við galdra?

8.  Galdra­kvik­indi einu, sem konur mögn­uðu upp á Íslandi fyrr á tíð, er svo lýst: „Hann var sívaln­ings­laga, magn­aður upp af manns­rifi sem vafið hafði verið ull­ar­flóka. Þetta báru kon­urnar inn­an­klæða milli brjósta sér og dreyptu á kvik­indið messu­víni þar til það var full­magnað. Þá settu þær [kvik­indið] á sepa eða vörtu efst í lær­krik­anum þar sem [það] saug sig [fast] og nærð­ist á blóði galdra­kon­unnar.“ Hvað kall­að­ist þetta?

9.  Earvin Johnson heitir fyrr­ver­andi körfu­bolta­maður vestur í Banda­ríkj­unum. Hann er nú 62 ára gam­all. Af hverju er ég að spyrja um hann hér?

10.  Um árið 200 eftir Krist gaf róm­verski fræði­mað­ur­inn Serenus Sammonicus út ljóða­bók­ina De medicina praecepta sem hafði að geyma galdra­þulur sem áttu að vinna bug á ýmsum sjúk­dómum. Þar birt­ist fyrst sér­stakur galdra­frasi sem átti þá að stemma stigu við sótt­hita, en hefur gegnum tíð­ina verið not­aður sem eins­konar alltum­lykj­andi tákn um beit­ingu galdra. Hver var þessi frasi Sammonicusar?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Á mynd­inni hér að neðan má sjá rit­höf­und sem oft er tal­inn hold­gerv­ingur greinar skáld­skapar sem kall­ast „töfraraun­sæi“ þar sem furðum líkir atburðir ger­ast eins og ekk­ert sé en sann­kall­aðir galdrar þykja vart umtals­verðir. Hvað hét þessi höf­undur?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Harry Potter.

2.  The Prestige.

3.  Galdra­bók Ellu Stínu.

4.  Draga kan­ínu úr pípu­hatti.

5.  David Copperfield.

6.  Dumbledore.

7.  Galdra-Loftur.

8.  Tilberi.

9.  Af því að hann kall­að­ist Magic Johnson.

10.  Abracadabra.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Maddama Mimm úr Andr­és­blöð­unum.

A neðri mynd­inni er Garcia Marquez, höf­undur Hundrað ára ein­semdar og fleiri bóka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár