509. spurningaþraut: Næstfjölmennasta ríki Evrópu þar sem kona hefur aldrei stjórnað?!

Fyrri auka­spurn­ing:

Úr hvaða kvik­mynd er skjá­skotið hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Isaac de Portau, Armand de Sillegue og Henri d'Aramitz voru franskir að ætt (raunar frá Gaskoníu) og uppi á 17. öld. Þeir urðu fyr­ir­myndir að per­sónum í frægri skáld­sögu. Hvað heitir sú skáld­saga?

2.  Apa­k­ettir lifa villtir á aðeins einum mjög afmörk­uðum stað í Evrópu. Hvaða staður er það?

3.  Hvað heita þeir apa­k­ettir sem þar búa?

4.  Í hvaða landi er höf­uð­borgin Havana?

5.  Hver kall­aði heim­ili sitt Graceland?

6.  Og í hvaða borg skyldi Graceland vera nið­ur­komið?

7.  Eitt af því sem sagt er vera ótelj­andi á Íslandi eru hól­arnir í ... ja, hvar?

8.  Hver var for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands á undan Boris Johnson?

9.  Hvað er fjöl­menn­asta ríki Evrópu þar sem kona hefur aldrei verið við stjórn­völ­inn sem lýð­ræð­is­lega val­inn leið­togi, hvorki sem for­seti né for­sæt­is­ráð­herra?

10.  En það næst fjöl­menn­asta í Evrópu þar sem gildir: Engin kona valist til valda?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver er á mynd­inni hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Skytt­urnar þrjár.

2.  Gíbraltar.

3.  Makakí-apa­k­ettir.

4.  Kúba.

5.  Elvis Presley.

6.  Memphis.

7.  Vatnsdal.

8.  Theresa May.

9.  Rússland.

10.  Ítalía.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Skjá­skotið hið efra er út kvik­mynd­inni When Harry Met Sally.

Ónefnd kona, við­skipta­vinur á veit­inga­húsi, segir:

„Ég ætla að fá það sem hún fékk sér.“

Eftir að hafa fylgst með Meg Ryan fá full­næg­ingu yfir matnum.

Eða rétt­ara sagt þykj­ast fá það.

Á mynd­inni hér til hliðar má sjá kon­una milli þeirra Meg Ryan og Billy Crystal.

Á neðri mynd­inni mátti aftur á móti sjá neðri hluta and­lits fót­bolta­karls­ins Cristiano Ronaldo.

Hann lítur svona út í heild.

Það er að segja þegar hann er ekki í íþrótta­treyj­unni sinni.

***

Svo má finna hlekk á eldri þrautir hér að neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár