Metaðsókn hjá tjaldsvæðum í júlí þrátt fyrir faraldur

Tjald­svæði um land allt hafa þurft að fækka gestum með litlum fyr­ir­vara vegna nýrra sótt­varn­ar­að­gerða. Kröfur um upp­lýs­inga­gjöf geta verið íþyngj­andi að sögn aðstand­enda tjald­svæð­anna.

Metaðsókn hjá tjaldsvæðum í júlí þrátt fyrir faraldur
Hamrar á Akureyri Met­fjöldi hefur sótt tjald­stæðið í júlí að sögn aðstand­enda. Mynd: Andreas H

Júlí hefði orðið met­mán­uður hjá tjald­svæð­inu Hömrum á Akureyri hefði nýj­ustu sótt­varn­ar­að­gerðir ekki litið dags­ins ljós. Á Hall­orms­stað er þessi mán­uður þegar sá fjöl­menn­asti sem sést hefur. Þetta segja yfir­menn á þessum tjald­svæðum.

„Miðað við fyrri hluta júlí vorum við með yfir fjórtán þús­und fleiri gistinætur en í fyrra. Ef þetta hefði haldið svo­leiðis áfram hefðum við klár­lega slegið met,“ segir Tryggvi Mar­ín­ós­son hjá tjald­svæð­inu Hömrum um þá gíf­ur­legu aðsókn sem verið hefur í sumar. „Núna verður það vænt­an­lega ekki,“ segir hann, enda botn­inn sleg­inn úr. Gestum hafi fækkað úr um tvö þús­und á nóttu niður í um þrjú hund­ruð manns sem nú eru á svæð­inu.

Nýjar sótt­varn­ar­reglur tóku nýverið gildi á Akureyri með til­heyr­andi áhrifum á tjald­svæði bæj­ar­ins. Í til­kynn­ingu á vef Akur­eyr­ar­bæjar er biðlað til íbúa að leita annað en að Hömrum eftir úti­vist og afþr­ey­ingu í ljósi nýj­ustu tak­markanna vegna Covid.

Gestir spyrja sig tvisvar um gagnaöflun og skráningu

Hamrar eru með stærri tjald­svæðum lands­ins og geta þar gist hátt í þriðja þús­und gesta þegar mest er. „Þetta er nátt­úru­lega hörm­ung,“ segir Tryggvi um rekstur tjald­svæða í ástand­inu sem verið hefur. „Við lentum líka í svona bröttum tak­mörk­unum í fyrra á fimmtu­degi fyrir versl­un­ar­manna­helgi, þá vorum við líka með fullt tjald­svæði og þurftum að fækka um fleiri hund­ruð manns með skömmum fyr­ir­vara.“

„Maður skilur sjón­ar­miðin bak við þetta þótt þetta geti verið íþyngj­andi“

Meðal nýrra ráð­staf­ana núna nefnir hann skrán­ingu allra gesta með nafni, kenni­tölu, heim­il­is­fangi og síma. „Maður skilur sjón­ar­miðin bak við þetta þótt þetta geti verið íþyngj­andi,“ segir Tryggvi. Ekki séu allir gestir sáttir með þær ráð­staf­anir. „Það kemur fyrir að menn spyrji sig tvisvar hvers vegna við þurfum allar þessar upp­lýs­ingar.“

Meðal nýj­unga í þess­ari fjórðu bylgju far­ald­urs­ins er að börn niður í sex ára eru skráð sem hluti af þeim hámarks­fjölda sem gista má í hverju sótt­varn­ar­hólfi. 

Júlí þegar orðinn metmánuður í Hallormsstaðaskógi

Bergrún Þor­steins­dóttir hjá tjald­svæð­inu Hall­orms­staða­skógi segir svip­aða sögu og Tryggvi. Þessi mán­uður er tví­mæla­laust stærsti júlí­mán­uður sem þau hafa séð. Fækkað hefur gíf­ur­lega hjá þeim und­an­farna daga en Bergrún spyr sig hvort það sé ekki helst við veð­urguð­ina að sakast.

„Við búum svo vel að vera með mörg kló­sett­hús og getum þess vegna raðað gestum í fleiri hólf,“ útskýrir Bergrún. „Því er ekki að fagna á öllum tjald­svæðum og því getur mun­ur­inn verið mik­ill.“ Með sínum fjöl­mörgu kló­sett­húsum geta tjald­svæðin í Atlavík og Höfðavík, sem bæði eru í Hall­orms­staða­skógi, boðið til sín allt að sjö hund­ruð manns í góðri sátt við sótt­varna­lög, segir Bergrún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár