479. spurningaþraut: Úr hvaða bókmenntaverki er þessi slagur?

479. spurningaþraut: Úr hvaða bókmenntaverki er þessi slagur?

Mynda­spurn­ingar:

Fyrri spurn­ing: Hluta úr hvaða bók­mennta­verki má sjá á mynda­sögu­brot­inu hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Í hvaða borg er lest­ar­stöðin Waterloo?

2.  En í hvaða landi er þorpið Waterloo?

3.  Hvaða ár átti sér stað þar fræg orr­usta?

4.  Hann fædd­ist í Kanada fyrir 27 árum og gaf fyrir örfáum mán­uðum út verkið Justice. Hvað heitir hann?

5.  Kangchenjunga heitir fjall eitt ansi hátt í Asíu. Það var klifið í fyrsta sinn árið 1955 af tveim Bretum en þeir höfðu lofað heima­mönnum að fót­um­troða ekki sjálfan topp fjalls­ins og námu því staðar rétt áður en þeir komu að hæsta punkti fjalls­ins. Þeirri hefð hafa fjall­göngu­menn síðan fylgt. Ég býst ekki við að mjög margir hér á landi þekki Kangchenjunga, en hvað er merki­leg­ast við það fjall? (Þá fyrir utan sið­inn, sem ég nefndi áðan.)

6.  Hver lét lífið í Abbotta­bad?

7.  Hvaða sveit­ar­fé­lag rann saman við Garðabæ fyrir örfáum árum?

8.  Hvað heitir rit­höf­und­ur­inn, sem þurfti að fara í felur 1989 þegar múslimaklerkur lýsti hann rétt­dræpan fyrir skáld­sögu, sem klerk­ur­inn taldi móðgun við múslima?

9.  Sá höf­undur hafði árið 1981 gefið út eina kunn­ustu skáld­sögu 20. aldar, þar sem lýst er leið Indlands til sjálf­stæðis og inn­byrðis átaka. Hvað heitir sú bók?

10.  Ljóða­ljóðin svo­nefndu eru hluti af ...?

***

Seinni spurn­ing: Hver er konan á mynd­inni hér að neðan, þá mjög á ungum aldri?

***

1.  London.

2.  Belgíu.

3.  1815.

4.  Justin Bieber.

5.  Þetta er þriðja hæsta fjall í heimi á eftir Everest og K2.

6.  Osama bin Laden. Ég veit að þar hafa fleiri dáið. En þið vitið samt hvað ég meina!

7.  Álftanes.

8.  Rushdie.

9.  Mið­næt­ur­börn, Midnight's Children.

10.  Bibl­í­unni, Gamla testa­ment­inu.

***

Efri myndin sýnir aðdrag­anda bar­daga Hektors og Akk­il­lesar úr Ílí­ónskviðu Hómers.

Neðri myndin er af Angelinu Jolie.

***

Hér fyrir neðan eru svo hlekkir á fleiri þrautir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár