478. spurningaþraut: Klerkar og kóngar eru nokkuð áberandi í þrautinni í dag

478. spurningaþraut: Klerkar og kóngar eru nokkuð áberandi í þrautinni í dag

Mynda­spurn­ingar eru tvær.

Sú fyrri hljóðar svo:

Hver er á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvað er kunn­asta við­ur­nefni séra Jóns Stein­gríms­sonar?

2.  En hvað var séra Jón Magn­ús­son kall­aður, sá er barð­ist af nán­ast vit­firr­ings­legri hörku gegn göldrum á 17. öld?

3.  Akbar hinn mikli fædd­ist 1542 og varð keis­ari í ríki hinna svo­nefndu mógúla sem var hvar ...?

4.  Við hvaða fjörð er Hólmavík?

5.  Í hvaða landi er borgin Izmir?

6.  Hvaða haf á Jörðinni mun hafa lok­ast og stífl­ast nokkrum sinnum á tíma­bil­inu frá því fyrir 5-23 millj­ónum ára, og við sum þeirra tæki­færa þurrkast svo til alveg upp?

7.  Árið 1066 gerðu tveir mik­ils­háttar furstar inn­rás á England. Fyrst bar að kon­ung Noregs og hann féll í orr­ustu við Eng­lands­kon­ung norð­ar­lega í land­inu 25. sept­em­ber. Hvað hét hann?

8.  Eng­land­s­kóngur þurfti þá að flýta sér suður á bóg­inn þar sem Vil­hjálmur nokkur var kom­inn að landi með annan her. Hvaðan kom Vil­hjálmur þessi?

9.  Enn erum vér á kónga­slóðum. Margir Frakka­kóngar báru nafnið Loðvík. Númer hvað var sá síð­asti þeirra? Hér er aðeins átt við þá sem báru Loð­víks­nafnið eitt.

10.  Og fyrst við erum byrjuð: Í gamla daga tíðk­að­ist nokkuð að sig­ur­sælir her­for­ingjar og kóngar stofn­uðu nýjar borgir á her­ferðum sínum, og nefndu þær gjarnan eftir sjálfum sér. Sumir borgir af þessu tagi visnuðu og hurfu, aðrar döfn­uðu vel en skiptu sumar um nafn í tím­ans rás. En hver er fjöl­menn­asta borgin af þessu tagi, sem enn í dag ber nafn af sínum sig­ur­sæla stofn­anda?

***

Sú seinni mynda­spurn­ing hljóðar svo:

Hvað heitir konan á þeirri hinni neðri mynd hér að neðan?!

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Eld-Klerkur.

2.  Þuml­ungur.

3.  Indlandi.

4.  Stein­gríms­fjörð.

5.  Tyrk­landi.

6.  Mið­jarð­ar­hafið.

7.  Haraldur harð­ráði.

8.  Normandý.

9.  Átján.

10.  Alex­andría í Egifta­landi, stofnuð af Alex­ander mikla.

***

Svör við mynda­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Viktoría Breta­drottn­ing.

Á neðri mynd­inni er Oddný Harð­ar­dóttir þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár