477. spurningaþraut: Að mála bæinn rauðan

477. spurningaþraut: Að mála bæinn rauðan

Fyrri mynda­spurn­ing.

Hér að ofan er skjá­skot úr all­frægri kvik­mynd frá 1973 þar sem farið var bók­staf­lega í að „mála bæinn rauðan“. Hver er leik­ar­inn sem sést í hægra megin? Lár­við­ar­stig er í boði fyrir að vita hvaða bíó­mynd var um að ræða.

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Píanó­k­vinett í A-dúr heitir frægt tón­verk sem heyrð­ist fyrst árið 1819. Það er kennt við fisk, ótrú­legt nokk. Hvaða fisk?

2.  Hver samdi þennan kvin­tett?

3.  Kona ein fædd­ist 1989 og hefur skrifað lærða rit­gerð í örveru­fræði um áhrif andox­un­ar­efna á lífs­feril þráð­orma. Hún lagði þó örveru­fræð­ina á hill­una og úrskrif­að­ist úr háskóla með gráðu í alþjóða­sam­skiptum og hag­fræði. Meðan hún var í skóla vann hún fyrir sér hjá Inn­flytj­enda­stofnun Banda­ríkj­anna og afgreiddi á bar þess á milli. Hún er ævin­lega brosmild og bar­átt­uglöð. Hvað heitir hún?

4.  Frá hvaða landi kom Krókó­díla-Dundee sá sem garð­inn gerði frægan fyrir ein­hverjum tíma síðan?

5.  The Mandalorian heitir vin­sæl hasar­sería í sjón­varpi sem víða er sýnd þessi miss­erin. Hún er sprottin af enn vin­sælli bíó­mynda­seríu sem kall­ast ...?

6.  Karl einn fædd­ist 1452 í smábæ tæpa 30 kíló­metra frá hinni frægu borg Flórens. Hann kenndi sig alla ævi við smá­bæ­inn þar sem hann fædd­ist en starf­aði ekki síst í Flórens. Hver var þetta?

7.  Hvaða ár var Háskóli Íslands stofn­aður?

8.  Hver færði hinum fornu Hebreum eða Gyðingum boð­orðin sem sögð voru frá guði?

9.  Á fjall­inu þar sem boð­orðin voru afhent, þar hafði guð og/eða eng­ill hans áður birst sama karli með mik­il­væg skila­boð, en var þá í nokkuð óvenju­legu líki. Hann birt­ist nefni­lega sem ... hvað?

10.  Hvaða fræga fyr­ir­tæki hleyptu þeir Kevin Systrom og Mike Krieger af stokk­unum 2010?

*** 

Seinni mynda­spurn­ing:

Hér að neðan sést umslag plötu sem út kom 1981. Hvað hét platan og hver er söng­konan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Silung.

2.  Schubert.

3.  Alex­andria Ocasio-Cortez, þing­maður í Banda­ríkj­unum.

4.  Ástralíu.

5.  Star Wars.

6.  Leonardo da Vinci.

7.  1911.

8.  Móse.

9.  Brenn­andi runni.

10.  Instagram.

***

Svör við mynda­spurn­ingum:

Leik­ar­inn á efri mynd­inni er vit­an­lega Clint Eastwood.

Lár­við­ar­stigið fæst svo fyrir að muna nafnið á meist­ara­verk­inu ódauð­lega, High Plains Drifter.

Á neðri mynd­inni er plötu­umslagið Litli Mexík­an­inn með barna­stjörn­unni Kötlu Maríu.

Þið fáið rétt þótt þið nefnið plöt­una „Lítill Mexíkani“ án greinis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár