480. spurningaþraut: Hér er eingöngu spurt um rottur

480. spurningaþraut: Hér er eingöngu spurt um rottur

Þetta er þema­þraut þar sem tala hennar endar á núlli. Þemað að þessu sinni eru rottur!

Fyrri mynda­spurn­ing:

Hvað heitir teikni­myndin þar sem þessi vina­lega rotta (til vinstri) er aðal­per­sónan?

***

1.  Brúna rottan heitir á lat­ínu rattus ... og svo kemur annað nafn sem er dregið af heiti á landi einu. Enginn veit almenni­lega af hverju brún­rottan er kennd við þetta land, en hvaða land er það?

2.  Upp­vax­andi rokk­hljóm­sveit gaf árið 1977 út plötu með lat­nesku heiti brún­rott­unnar. Hvaða hljóm­sveit var það?

3.  En svartrottan sjálf — hvað heitir hún á lat­ínu? Rattus ... hvað?

4.  Brún­rottur sem lifa villtar úti í nátt­úr­unni (eða í hol­ræsum) verða yfir­leitt um tveggja ára gamlar ef mein­dýra­eyðir­inn nær ekki í skottið á þeim. En hversu gamlar verða svartrott­urnar?

5.  Skáld­saga eftir Nóbels­höf­und einn endar á þessum orðum: „Sá dagur kann að koma mönnum til ógæfu, að drep­sóttin veki upp rottur sínar og sendi þær til að deyja í ein­hverri ham­ingju­samri borg.“ Hvað heitir skáldsagan?

6.  Plott fyrr­nefndrar skáld­sögu er sprottið af því að rottur hafa lengi verið grun­aðar um að breiða út og dreifa einni ill­skeytt­ustu drep­sótt sög­unnar. Nýjustu rann­sóknir benda til að það kunni að vera málum blandið, en hvaða drep­sótt var þetta?

7.  Árið 1971 var gerð hryll­ings­mynd um ungan mann að nafni Willard sem verður aðeins of hrif­inn af rottum. Það end­aði með ósköpum, nema fyrir fram­leið­endur bíó­mynd­ar­innar (sem heitir Willard), en þeir græddu stórfé og gerðu því aðra mynd ári seinna, sem heitir eftir afar ill­skeyttri rottu sem Willard kom á legg. Hvað hét sú rotta og bíó­myndin þar með?

8.  Í skáld­sögu einni reynir vondi kall­inn lengi að brjóta niður sögu­hetj­una Winston Smith á bak aftur and­lega, en það tekst ekki fyrr en vondi kall­inn upp­götvar að Smith er dauð­hræddur við rottur og notar þær til að hræða úr honum líf­tór­una. Hvaða skáld­saga er þetta?

9.  Í smá­sögu einni má finna eft­ir­far­andi setn­ingu (í laus­legri þýð­ingu): „„Matilda Briggs var ekki nafnið á ungri konu, [NAFNI SLEPPT],“ sagði [ÖÐRU NAFNI SLEPPT] í upp­rifj­un­ar­tón. „Þetta var skip sem kom við sögu í máli risarott­unnar á Súmötru, en ver­öldin er ekki enn til­búin til að heyra þá frá­sögn.““ Hver talar?

10. Rottur eru harla frjósamar. Hversu marga afkom­endur gætu rottu­hjón eign­ast á ÞREMUR árum ef allar hefðu nóg að bíta og brenna og gætu dafnað hindr­un­ar­laust? Hér má muna einni milljón til eða frá.

***

Seinni mynda­spurn­ing:

Mál­verkið hér að neðan heitir Tvær rottur, en hver mál­aði það? Ég við­ur­kenni að þetta er MJÖG erfið spurn­ing, því fæstir vita af þessu mál­verki og það er ekki bein­línis dæmi­gert fyrir verk lista­manns­ins. Til að gefa ykkur smá vís­bend­ingu, þá skal ég taka fram að verkið var málað 1884.

***

Svör við aðal­rottu­spurn­ingum:

1.  Noregur.

2.  Hljóm­sveitin Stranglers gaf út plöt­una Rattus Norvegicus.

3.  Rattus rattus.

4.  Eins árs.

5.  Plágan eftir Albert Camus.

6.  Svarti dauði.

7.  Ben.

8.  1984.

9.  Sherlock Holmes. 

10.  500 millj­ónir, svo rétt er allt frá 499-501 milljón. Ef ein­hver nær réttu svari við þess­ari spurn­ingu má hann sæma sig lár­við­ar­stigi með eik­ar­laufum og stjörnu.

***

Svör við mynda­spurn­ingum:

Rottan á efri mynd­inni er úr teikni­mynd­inni Ratatouille.

Rott­urnar á neðri mynd­inni mál­aði Van Gogh.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár