481. spurningaþraut: Hvað var Nixon að vilja útí miðju Kyrrahafi?

481. spurningaþraut: Hvað var Nixon að vilja útí miðju Kyrrahafi?

Mynda­spurn­ing sú hin fyrri:

Hver er konan á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hér er ein spurn­ing afgangs frá rottu­spurn­ingum gær­dags­ins: MUS MINIMUS var heiti Rómverja hinna fornu yfir mýs. En hvað kölluð Róm­verjar rottur?

2.  Í hvaða landi eru hér­uðin Sussex og Wessex?

3.  Þann 24. júlí 1969 flaug Nixon Banda­ríkja­for­seti með þyrlu frá Havaí út á gam­alt flug­véla­móð­ur­skip sem breytt hafði verið í fjar­skipta­skip. Nixon svaf eina nótt um borð í skip­inu en fór svo dag­inn eftir með annarri þyrlu út á flug­véla­móð­ur­skipið Hornet sem var statt 1.500 kíló­metra suð­vestur af Havaí. Hvaða ferða­lag var þetta á Banda­ríkja­for­seta?

4.  Ferdin­and von Zeppelin var braut­ryðj­andi í þróun hvaða tækja?

5.  Led Zeppelin var aftur á móti rokk­hljóm­sveit. Hver var söngv­ari í þeirri hljóm­sveit?

6.  Hinn mik­il­feng­legi Óður til gleð­innar er hluti af hvaða tón­verki?

7.  Þann 20. apríl 1950 flutti Tómas Guð­munds­son skáld kvæði þar sem hann hyllti „þá ungu list, sem eftir stund­ar­bið, / fer eldi log­ans helga um þetta svið“ og lýsti því hvernig „und­rið hefir gerst, / frá ógn og hruni skynjun vor er snúin, / til liðs við allt, sem valdi dauð­ans verst“. Við hvaða hátíð­lega tæki­færi flutti Tómas þetta kvæði sitt?

8.  Þær kyn­slóðir sem lærðu dönsku af Andr­és­blöð­unum vilja flestar enn kalla ákveðna per­sónu í blöð­unum Fedtmule — eða eitt­hvað álíka — því það heitir per­sónan á dönsku. En hvað var per­sónan nefnd eftir að farið var að þýða Andr­és­blöðin á íslensku?

9.  Hvaða land vann Eurovision keppn­ina nú í vor?

10.  Elín Pálma­dóttir var í ára­tugi afkasta­mikil blaða­kona og skrif­aði að auki merk rit um franska sjó­menn við Ísland og fleira. Á hvaða dag­blaði starf­aði Elín nær alla sína starfsævi?

***

Mynda­spurn­ing sú hin seinni:

Hvaða mik­ils­háttar borg til forna hafði svo mikla, vand­lega byggða og glæsi­lega höfn?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Mus max­imus.

2.  Bret­landi.

3.  Hann var að taka á móti tungl­för­unum úr Appollo 11.

Arm­strong, Collins, Aldrin og Nixon

4.  Loft­skipa.

5.  Robert Plant.

6.  Níundu sin­fóníu Beethovens.

7.  Vígslu Þjóð­leik­húss­ins.

8.  Guffi.

9.  Ítalía.

10.  Morg­un­blað­inu.

***

***

Svör við mynda­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Cate Blanchett kvik­mynda­stjarna.

Á neðri mynd­inni er hafn­ar­hverfið í Karþagó, skammt frá hinni núver­andi Tún­isborg.

***

Og lítið á hlekk­ina hér að neðan!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár