474. spurningaþraut: Tvær prinsessur sem dóu í bílslysum í Frakklandi

474. spurningaþraut: Tvær prinsessur sem dóu í bílslysum í Frakklandi

Efri mynda­spurn­ing:

Hvað heitir konan hér að ofan?!

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Fingraför, Ný spor, Sjálfs­mynd, Sól að morgni, Sögur af landi, Túngumál, Þrír blóð­dropar, Þúsund kossa nótt. Þessi átta heiti prýða öll sóló­plötur Bubba Morthens — nema eitt, sem er plata með öðrum tón­list­ar­manni. Hver er hún?

2.  Hvaða ríki til­heyrir eyjan Súmatra?

3.  En eyjan Baffins­land, hvaða ríki til­heyrir hún?

4.  Allt er þegar þrennt er og hvaða ríki til­heyrir eyjan O'ahu?

5.  Af fundi hvers var Winston Churchill að koma þegar hann leit við á Íslandi í ágúst 1941?

6.  Blue Origin er far­ar­tæki sem var í sviðs­ljós­inu fyrir skömmu. Hvers konar far­ar­tæki?

7.  Prinsessa ein dó í bílslysi í Frakk­landi árið 1982. Hvað hét hún?

8.  Önnur prinsessa dó líka í bílslysi í Frakk­landi en það var fimmtán árum síðar. Við vitum öll að hún hét Díana en hvert var eft­ir­nafn hennar við fæð­ingu?

9.  Díana var á ferð með þáver­andi kærasta sem dó líka. Hvað hét hann?

10.  Ein vin­sælasta söng­kona heims­ins um þessar mundir heitir Rihanna. Hún er frá einu smæsta ríki heims­ins, eyríki í Karbía­hafi sem heitir ...?

***

Neðri mynda­spurn­ing:

Hvað er að ger­ast á mynd­inni hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Þrír blóð­dropar.

2.  Indónesíu.

3.  Kanada.

4.  Banda­ríkj­unum. Þetta er ein Havaí-eyja.

5.  Roosevelts Banda­ríkja­for­seta.

6.  Geimfar.

7.  Grace Kelly.

8.  Spencer.

9.  Dodi Fayed.

10.  Barbados.

***

Svör við mynda­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Sarah Huckabee Sanders sem var um eitt skeið tals­maður Donalds Trumps í Hvíta hús­inu.

Á neðri mynd­inni er Bjarni Frið­riks­son að vinna brons­verð­laun á ólymp­íu­leik­unum í Los Angeles 1984. Það dugar að nefna Bjarna, brons­verð­laun og ólymp­íu­leika.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár