473. spurningaþraut: Hvað hét kafbáturinn hans Nemós skipstjóra?

473. spurningaþraut: Hvað hét kafbáturinn hans Nemós skipstjóra?

Fyrri mynda­spurn­ing:

Í hvaða landi er þessi dans stig­inn?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Vinson-fjall er hæsta fjallið hvar?

2.  Í frægum ævin­týra­bókum frá ofan­verðri 19. öld segir meðal ann­ars frá Nemó skip­stjóra sem siglir um höfin í kaf­báti sínum, löngu áður en slíkir bátar urðu sjó­hæfir í raun. Hvaða höf­undur skrif­aði um kaftein Nemó og kaf­bát­inn hans?

3.  Hvað hét kaf­bát­ur­inn hans?

4.  Árið 1954 tóku banda­ríski flot­inn í notkun skip sem var nefnt eftir kaf­báti Nemós. Hvað var merki­legt við það skip? Svarið þarf að vera þokka­lega nákvæmt.

5.  Í hvaða ríki til forna gengu svo­nefndir hop­lítar til stríðs með hjálma sína og löng spjót en sverð heldur stutt?

6.  Í hvaða borg er hið fræg­asta Tívolí nú um stundir?

7.  Snabbi, Snúður og Tikkatú eru per­sónur í sög­unum um ...?

8.  Katrín Thorodd­sen var þriðja konan sem sett­ist á Alþingi. Hún mætti á þing fyrir Sós­í­alista­flokk­inn 1945. En fyrir utan stjórn­mála­störf átti Katrín líka merkt ævi­starf sem ...?

9.  Móðir Katrínar var frægt skáld, sem end­ur­vakti um skeið hið gamla form þul­unnar. Hvað hét hún?

10.  The Valhalla Murders heitir glæpa­sería íslensk með Nínu Dögg, Birni Thors og fleirum, sem frum­sýnd var 2019 og ári seinna sýnd á Netflix og víðar. The Valhalla Murders er reyndar bara heitið sem ser­ían gekk undir erlendis. Hvað nefn­ist hún á íslensku?

***

Seinni mynda­spurn­ing:

Hvaða hljóm­sveit leikur og syngur á skjá­skot­inu hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Á Suð­ur­skauts­land­inu.

2.  Verne.

3.  Nautilus.

4.  Fyrsti kjarn­orkuknúni kaf­bátur sög­unnar. Hér skiptir kjarn­orkan öllu máli.

5.  Grikk­landi.

6.  Kaup­manna­höfn.

7.  Múmínálf­ana.

8.  Læknir.

9.  Theodóra Thorodd­sen.

10.  Brot.

***

Svör við mynda­spurn­ingum:

Dansinn á efri mynd­inni er stig­inn í Ástralíu.

Hljóm­sveitin á neðri mynd­inni er írska gleði­sveitin U2.

Hér má sjá mynd­ina alla:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár