475. spurningaþraut: Hvaða heimsfræga móðir sá ekki dóttur sína í aldarfjórðung?

475. spurningaþraut: Hvaða heimsfræga móðir sá ekki dóttur sína í aldarfjórðung?

Mynda­spurn­ingar eru tvær að þessu sinni.

Hér er sú fyrri:

Hvað kall­ast sá her­bíll sem sést á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvað hét dóttir Stalíns sem leit­aði hælis á Vest­ur­löndum árið 1967?

2.  Þá var faðir hennar dáinn fyrir all­löngu en hver var helsti leið­togi Sov­ét­ríkj­anna árið þegar hún flúði?

3.  Teresa de Cepeda y Ahumada fædd­ist í bænum Ávila og var oft kennd við þennan heimabæ sinn. Hvað fékkst Teresa frá Avila við í líf­inu?

4.  Hvað eru þeir sem kall­ast á mörgum algengum erlendum málum aþei­istar?

5.  Tvö af áhrifa­mestu dag­blöð­unum ann­ars vegar í London og hins vegar í New York heita sama nafni. Hvaða nafni?

6.  Hvað heitir hins vegar fræg­asti skemmti- eða úti­vist­ar­garð­ur­inn í New York?

7.  En kunn­asti garð­ur­inn af því tagi í London?

8.  Tómas frændi. Hvers konar hús­næði er honum tengt?

9.  Árið 1963 fædd­ist hjónum dóttir. Móðir stúlkunnar skildi við föður hennar 1969 og gift­ist síðar á því ári öðrum manni, heims­frægum er óhætt að segja. Stúlkan var öðru hvoru hjá móður sinni og nýja mann­inum, en þó aðal­lega hjá föður sínum. Þegar pabb­inn ótt­að­ist að glata for­ræð­inu yfir dótt­ur­inni 1971 í hendur móð­ur­innar og hins heims­fræga eig­in­manns hennar, þá lét hann sig hverfa með litlu stúlk­una og móð­irin sá ekki dóttur sína aftur fyrr en 1997 eða 1998. Þá hafði dóttirin lengi gengið undir nafn­inu Ruth Holman, og var hún löngu orðin gift kona og hafði eign­ast tvö börn. Móðir hennar hafði hins vegar eign­ast son með heims­fræga eig­in­mann­inum árið  1975  — og raunar var hún þá löngu orðin heims­fræg sjálf, þótt sér í lagi framan af hefði hún verið ansi umdeild. Hvað heitir þessi heims­fræga móðir sem sá ekki dóttur sína svo lengi?

10.  Hve marga mjólk­andi spena hafa kýr?

***

Seinni mynda­spurn­ing snertir líka hernað.

Hvaða ríki heldur úti þessum prúða dáta sem hér að neðan sést?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Svetlana.

2.  Brésnef.

3.  Hún var nunna. Raunar var hún dul­spek­ingur og guð­fræð­ingur og sitt­hvað fleira, en orðið nunna verður að koma fram.

4.  Trú­lausir.

5.  Times — New York Times og The Times of London.

6.  Central Park.

7.  Hyde Park. Ekki reyna að hár­toga hver er fræg­asti garð­ur­inn, það er Hyde Park og eng­inn annar!

8.  Kofi.

9.  Yoko Ono.

10.  Fjórir.

***

Svör við mynda­spurn­ingum:

Her­trukk­ur­inn á efri mynd­inni er af gerð­inni Humvee. Ég ætla að gefa rétt fyrir Hummer líka, en svo mun heita borga­út­gáfan af þessu flykki.

Dátinn á neðri mynd­inni gætir mann­virkja í höf­uð­borg Grikk­lands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár