457. spurningaþraut: Hver var Hólmar?

457. spurningaþraut: Hver var Hólmar?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hver er karl­inn hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Lítill runni af bjarka­rætt er algengur um mest­allt land. Hann finnst tölu­vert hærra en birki og er algengur upp í 700 metra hæð, jafn­vel í fjöllum. Á lág­lendi vex runn­inn í hrís­móum eða þýfðum mýrum og einnig í bland við lyng og víði. Blöðin eru lítil og næstum kringlótt, dökk­græn að ofan. Hvað heitir þessi runni?

2.  Í hvaða landi er borgin Basra?

3.  Hvaða hljóm­sveit gaf út plötu sem oft­ast er kölluð Hvíta albú­mið?

4.  En hvaða Íslend­ingur gaf út plöt­una „Hvað ef“ árið 2018 og sóp­aði til sín tón­list­ar­verð­launum fyrir grip­inn?

5.  Í hvaða heims­álfu er landið Bólivía?

6.  Hver er eini for­seti Íslands sem EKKI var val­inn í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu?

7.  Karl nokkur fædd­ist árið 1945 og var í æsku yfir­leitt kall­aður Hólmar Vil­hjálms­son. Hólmar var raunar milli­nafn hans en þegar hann lagði út á lista­braut, þá lagði hann Hólmar á hill­una en tók að nota fyrst og fremst sitt fyrra skírn­ar­nafn. Sem var ...?

8.  Einhver vin­sæl­asti rit­höf­undur þjóð­ar­innar á fyrstu ára­tugum lýð­veld­is­ins var Guðrún frá Lundi, sem skrif­aði Dalalíf og fleiri víð­lesnar bækur. Hvers dóttir var Guðrún?

9.  Og í hvaða sveit var bær­inn Lundur sem hún kenndi sig við?

10.  Einn af sig­ur­sæl­ustu hand­bolta­körlum okkar — sem varð vel met­inn þjálf­ari eftir að ferl­inum lauk — er alnafni þing­manns sem sat á Alþingi Íslend­inga 1956-1967. Hvaða hand­bolta­maður er þetta? — og athugið hér orðið ALnafni.

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver er konan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Fjall­drapi.

2.  Írak.

3.  Bítl­arnir.

4.  GDRN, Guðrún Ýr Eyfjörð.

5.  Suður-Ameríku.

6.  Sá fyrsti, Sveinn Björns­son. Alþingi kaus hann til bráða­birgða 1944 en svo var hann að vísu kos­inn í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu ári síðar.

7.  Vil­hjálmur. Þetta var sem sagt söngv­ar­inn góð­kunni Vil­hjálms­son.

8.  Hún var Árna­dóttir.

9.  Lundur er í Fljótum en einnig dugir að nefna Skaga­fjörð.

10.  Alfreð Gíslason. Hann var alnafni þing­manns Alþýðu­banda­lags­ins.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er list­málar­inn Jóhannes Kjarval en á þeirri neðri tennis­leik­ar­inn Serena Williams.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár