456. spurningaþraut: Helsta konan í hópi lærisveina Jesúa frá Nasaret

456. spurningaþraut: Helsta konan í hópi lærisveina Jesúa frá Nasaret

Fyrri auka­spurn­ing:

Hver er oní þess­ari kistu?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Kunnugir full­yrða að á Íslandi sé til sér­stakt dýra­kyn, sem sé betur til for­ystu fallið en önnur dýr af sömu teg­und. Hvaða dýr er hér um að ræða?

2.  Ætt hinna svo­nefndu Abbasída gegndi í margar aldir einu virð­ing­ar­mesta emb­ætti í heimi. Hvaða emb­ætti var það?

3.  Fyrir nokkrum árum var gerð valda­ránstil­raun í Tyrk­landi og her­menn reyndu að steypa for­set­anum af stóli. Þeir voru sagðir styðja klerklærðan mann, sem er í útlegð í Banda­ríkj­unum. Hvað heitir hann?

4.  En hvað heitir ann­ars for­seti Tyrk­lands, sá sem átti að steypa af stóli?

5.  Hvað hét konan sem virð­ist hafa verið full­gild í hópi helstu læri­sveina Jesúa frá Nasaret?

6.  Hver flutti fræga ræðu þar sem segir meðal ann­ars: „Við munum berj­ast í fjör­unum, við munum berj­ast á lend­ing­ar­stöð­unum, við munum berj­ast á ökrunum og á göt­unum, við munum berj­ast á hæð­unum.“

7.  Gegn hverjum var við­kom­andi svona til í að berj­ast?

8.  Blindur maður sem orti ljóð um Snorra Sturlu­son en fékk aldrei Nóbels­verð­launin sem margir töldu þó að hann ætti skilið, ekki síst fyrir smá­sögur sínar. Hvað hét hann?

9.  Þýskir nas­istar skip­uðu Gyðingum á sínum svæðum að ganga með stjörnu á fötum sínum. Hvernig var stjarnan á lit­inn?

10.  Sam­kyn­hneigt fólk var aftur á móti auð­kennt með þrí­hyrn­ingi. Hvernig var hann á lit­inn? 

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hér að má sjá systur tvær, Theodoru (f. 1985) og Alexöndru (f. 1986). Þær eru báðar fyr­ir­sætur og hafa náð ágætum árangri, enda var móðir þeirra þekkt módel á sínum tíma og hefur eflaust kennt þeim fáein leynd­ar­mál úr brans­anum. Syst­urnar hafa einnig komið við sögu á ýmsum sviðum fjöl­miðl­unar og lista og þykja miklir karakt­erar, Þær munu þó sjálf­sagt þurfa að sætt­ast á að verða alla tíð þekktastar sem dæt­urnar hans pabba síns en hann er víð­kunnur tón­list­ar­maður, sem nú er að vísu kom­inn mjög á efri ár — ýmsum reyndar að óvörum! Hvað heitir pabbi þess­ara hressu kvenna?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Kindur.

2.  Þeir voru kalífar í Bagdad.

3.  Gülen.

4.  Erdogan.

5.  María Magda­lena.

6.  Churchill.

7.  Þjóð­verja.

8.  Borges. Fullu nafni Jorge Luis Borges.

9.  Gul.

10.  Bleikur.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni má sjá kistu Napo­le­ons.

Á neðri mynd­inni eru sem sé þær Theodora og Alex­andra Richards, dætur Keiths gít­ar­leik­ara í The Rolling Stones. Móðir þeirra heitir Patty Hansen.

***

Lítið svo á hlekk­ina hér að neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár