455. spurningaþraut: Hér er spurt um karla tvo sem fyrirsæta ein lagði lag sitt við, og fleira

455. spurningaþraut: Hér er spurt um karla tvo sem fyrirsæta ein lagði lag sitt við, og fleira

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvaða stað á Íslandi má sjá á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  John Dill­in­ger hét maður. Hvað fékkst hann helst við í líf­inu? Svarið þarf að vera þokka­lega nákvæmt. 

2.  Ítalir urðu um dag­inn Evr­ópu­meist­arar í fót­bolta karla. En hve margir eru heims­meist­aratitlar þeirra?

3.  Fyr­ir­bæri eitt er til í mörgum gerðum en sú algeng­asta og útbreiddasta er kölluð á lat­ínu „triticum aestivum“. Hljóm­sveitin Stuðmenn söng um mann sem var kom­inn að nið­ur­lotum, lík­lega vegna ofneyslu eða ofnotk­unar á triticum aestivum. Gælunafn manns­ins virð­ist að minnsta kosti benda til þess. Hann ber sig þó vel og húm­búkk­aði kerfið eftir kvöld­mat. Hvað er þetta triticum aestivum?

4.  Í sagn­fræði er talað um stein­öld og seinna rann upp járnöld. En hvaða öld er sögð hafa verið þarna inn á milli?

5.  Þegar Stöð 2 hóf göngu sína 1986 voru karl­menn áber­andi meðal stjórn­enda en ein kona lét þó víða til sín taka í dag­skránni, arki­tekt að mennt. Hún heitir ...?

6.  Jerry Hall heitir kona ein banda­rísk og var ein marg­prís­að­asta fyr­ir­sæta heims­ins þegar hún gekk í hjóna­band 1990 með frægum tón­list­ar­manni. Þau áttu þá þegar nokkur börn saman. Hjóna­band þeirra tveggja var þó seinna úrskurðað ógilt og að engu haf­andi. Hver er tón­list­ar­mað­ur­inn?

7.  Hall og tón­list­ar­mað­ur­inn skildu að skiptum en 2016 gekk hún sann­ar­lega í lög­legt hjóna­band, og að þessu sinni með athafna­manni einum kunnum en umdeildum. Hvað heitir hann?

8.  Hvaðan kemur Roma-fólkið?

9.  Ensku­mæl­andi þjóðir köll­uðu Roma-fólk Gypsies. Orðið Gypsy varð til vegna þess að menn töldu að Roma-fólkið kæmi frá allt öðru landi. Hvaða landi?

10.  Þjóð­verjar og fleiri (til dæmis Íslend­ingar) nefndu Roma-þjóð­ina hins vegar Sígauna. Það orð er dregið af þýskri rót sem merkir ...? 

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvað er að ger­ast á mynd­inni hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Banka­ræn­ingi. „Glæpa­maður“ dugar því miður ekki.

2.  Fjórir.

3.  Hveiti. Sjá hér Hveiti­björn Stuð­manna: 

4.  Bronsöld.

5.  Val­gerður Matth­í­as­dóttir, Vala Matt.

6.  Mick Jagger.

7.  Murdoch.

8.  Indlandi.

9.  Egifta­landi — öðru nafni „Egypt“ sem varð að„Gypsy“.

10.  Hinir ósnert­an­legu.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Seyð­is­fjörður.

Á neðri mynd­inni er Valdimar Örn Flygenring að leika í marg­frægri Calvin Klein-aug­lýs­ingu fyrir 30 árum eða svo.

Lítið svo á hlekk­ina hér að neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár